Listi Viðreisnar í Kópavogi

María Ellen Steingrímsdóttir leiðir öflugan lista Viðreisnar í Kópavogi fyrir sveitarstjórnarkosningar 2026

Á fjölmennum fundi Viðreisnar í Kópavogi sem fram fór á 27 Mathús & bar í Kópavogi kynnti uppstillingarnefnd öflugan lista Viðreinsar í Kópavogi fyrir félagsmönnum Viðreisnar.

Listinn var einróma samþykktur við frábærar undirtektir.

María Ellen, oddviti, segist þakklát fyrir allt það frábæra fólk sem sóttist eftir að taka sæti á listanum – en á listanum er valin maður í hverju sæti.

Þar má nefna Sigrúnu Ólöfu Ingólfsdóttur, skólastjóra Hörðuvallaskóla, sem vakið hefur mikla athygli fyrir gagnrýni sína á úrræðaleysi vegna áskorana í menntakerfinu og Bryndísi Rut Logadóttur, varaformann Félags hjúkrunarfræðinga, sem hefur verið ötull talsmaður bættrar þjónustu við eldri borgara.

,,Ég hef fulla trú á því að nýr listi Viðreisnar í Kópavogi muni vekja athygli bæjarbúa og við hlökkum mikið til að kynna nýja stefnu sem hönnuð er með hagsmuni bæjarbúa á öllum aldri í huga” segir María Ellen oddviti Viðreisnar í Kópavogi.

 

Listi Viðreisnar í Kópavogi

  1. María Ellen Steingrímsdóttir – lögfræðingur
  2. Pétur Björgvin Sveinsson – varaþingmaður og starfsmaður þingflokks Viðresinar
  3. Arnar Grétarsson – knattspyrnuþjálfari og viðskiptafræðingur
  4. Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir – skólastjóri Hörðuvallaskóla
  5. Elvar Bjarki Helgason – sölu- og þjónustustjóri
  6. Bryndís Rut Logadóttir – hjúkrunarfræðingur
  7. Ísak Leon Júlíusson – laganemi
  8. Irpa Fönn Hlynsdóttir – framkvæmdastjóri
  9. Ágeir Þór Jónsson – kokkur og atvinnurekandi
  10. Sigurlín Margrét Sigurðardóttir – frumkvöðull og leiðsögumaður
  11. Andrés Pétursson – stjórnandi Nordplus
  12. Sóley Eiríksdóttir – sagnfræðingur
  13. Máni Þór Magnason – heilbrigðisfulltrúi hjá HEF
  14. Þórunn Einarsdóttir – framhaldsskólakennari við Kvennaskólann í Reykjavík
  15. Þór Hinriksson – rafvirki
  16. Auður Gunnarsdóttir – vörustjóri
  17. Bergþór Skúlason – tölvunarfræðingur
  18. Inga Þórunn Halldórsdóttir- fyrrum skólastjóri
  19. Hafsteinn Hrannar Ásgrímsson – verkefnastjóri á netöryggissviði
  20. Ingibjörg Auður Guðmundsdóttir – verkefnastjóri
  21. Jón Ingvar Bragason – framkvæmdastjóri
  22. Kristín Þórhalla Rokk Þórisdóttir – kvikmyndaframleiðandi