Fiskur, ferðamenn og framtíðin

Ég hef verið formaður hafnarstjórnar allt kjörtímabilið. Það hefur verið krefjandi, enda hafa síðustu ár verið viðburðaríkar. Í dag er fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins og því er ágætt að skrifa nokkur orð um stöðu hafnanna.

Fyrst um skemmtiferðaskipin. Árið 2022 vorum við enn að jafna okkur eftir Covid, sem hafði mikil áhrif á komur skemmtiferðaskipa. Skipulagsmál hafa verið tímafrek. Dýpkunarframkvæmdir tóku lengri tíma en áætlað var. Miklar framkvæmdir hafa átt sér stað. Tekinn var í gagnið nýr viðlegukantur, götur lagðar og torg búið til. Þar er nú komin aðstaða fyrir margar rútur og fyrirtæki að athafna sig, og undirbúningur að nýju móttökuhúsi er langt kominn. Enn eru miklar hugmyndir um uppbyggingu á Suðurtanga og verður skemmtilegt að fylgja því eftir.

Einn lykilþáttur í því hversu vel hefur tekist til er stefna og aðgerðaáætlun í móttöku skemmtiferðaskipa sem samþykkt var í apríl 2024. Þar tók Gylfi Ólafsson afgerandi pólitíska forystu í málinu. Málið var vel undirbúið, fékk ítarlegt samráð og rann í gegnum pólitíska ferla án vandræða. Þar tókum við stjórnina og það er augljóst að algjör viðsnúningur hefur orðið á umræðunni og almenn ánægja er með þessa þróun, ekki eingöngu innan sveitarfélagsins heldur er eftir henni tekið utan bæjarins.

Meðal þátta í stefnunni var að íbúar fengju að njóta afrakstursins með því til dæmis að verja talsverðum fjármunum í að efla menningarlíf í bænum bæði í opnum samkeppnissjóði, með kaupum á útilistaverki og með ríflegum styrk til hátíðarinnar Aldrei fór ég suður.

Langur verkefnalisti

Tveir þriðjuhlutar af tekjum hafnanna koma frá skemmtiferðaskipum. Innviðirnir eru í uppbyggingu og því er skiljanlegt að sú uppbygging taki tíma, en það er auðvitað margt annað sem hafnarstjórn fæst við.

Á Suðureyri eru miklar framkvæmdir núna um færslu á brimvarnargarði. Þær framkvæmdir eru eftir forskrift sem heimamanna sem komu á opinn fund með hafnarstjórn og Vegagerðinni. Stefnt er á að klára það í sumar.

Það verður að viðurkennast að hægar hefur gengið á Flateyri og Þingeyri. Þar hefur ríkið, sem ber ábyrgð á stórum verkþáttum, seinkað framkvæmdum ítrekað, sem gert hefur hafnarsjóði erfitt fyrir. Stórviðgerð á Flateyrarhöfn er nú á áætlun 2027. En það er samt ekki hægt að bíða lengur og þó það geti kostað höfnina meira en henni ber, verður að lagfæra aðstöðuna þannig að hún verði sómasamleg.

En þótt verkefnalistinn sé  langur er hann langt frá því að vera leiðinlegur. Það eru bjartir tímar framundan. Laxeldi vex. Bókanir skemmtiferðaskipa eru farnar að taka við sér og farnar að teygja sig til ársins 2030. Samstarfið í hafnarstjórn hefur verið gott og þannig vinnast málin best. Þannig viljum við hafa það áfram.

Magnús Einar Magnússon

Formaður hafnarstjórnar Ísafjarðarbæjar og í 3. sæti Viðreisnar í komandi kosningum