ísafj. valur

Upplifun sem hefur áhrif á traust

Sveitarfélag á að vera stoð og stytta samfélagsins. Við eigum að styðja við daglegt líf fólks og skapa fyrirtækjum umhverfi þar sem þau geta blómstrað. Það skiptir máli hvernig sveitarfélag mætir þeim erindum sem íbúar og fyrirtæki koma með að borðinu, og upplifun hagaðila skiptir gríðarlegu máli fyrir uppbyggingu á svæðinu.

Í samtölum við íbúa og atvinnurekendur hér á svæðinu hef ég ítrekað heyrt að samskipti við stjórnsýsluna geti verið erfið. Að svör berist seint, erindi dragist á langinn og óvissa ríki í mikilvægum málum sem varða uppbyggingu og rekstur. Þetta er ekki aðeins óþægilegt að heyra, þetta hefur bein áhrif á traust og getur haft raunverulegar fjárhagslegar afleiðingar fyrir fyrirtæki sem treysta á skjót og fagleg viðbrögð.

Þjónustan er kjarninn

Þjónusta sveitarfélagsins er kjarninn í allri starfsemi þess. Á síðasta kjörtímabili var unnið markvisst að því að bæta þessa ferla; auka gagnsæi, efla skilvirkni og tryggja að íbúar upplifi það að á þá sé hlustað. Það er mikilvægt að við byggjum áfram á þeirri vinnu, en jafnframt viðurkennum að enn er svigrúm til umbóta.

Við getum gert betur, og við eigum að gera betur.

Til þess þarf skýra sýn og raunhæfar aðgerðir. Með því að einfalda samskiptaleiðir, gera þær aðgengilegri og tryggja að erindi rati rétt frá upphafi má spara bæði tíma og fyrirhöfn. Innleiðing skýrra þjónustuviðmiða, til dæmis um svarfresti, myndi skapa fyrirsjáanleika fyrir íbúa og fyrirtæki. Einnig er mikilvægt að ábyrgð sé skýr innan stjórnsýslunnar, svo mál „detti ekki á milli stafs og hurðar“.

Skýr sýn og raunhæfar úrbætur

Þá þarf að huga að innri starfsemi bæjarins. Starfsfólk þarf að hafa bæði tíma og úrræði til að sinna erindum vel. Það er fjárfesting í þjónustu sem skilar sér margfalt til baka í auknu trausti, betra samstarfi og betra samfélagi. Stafræn þróun getur gegnt lykilhlutverki, einfaldar og notendavænar lausnir sem gera fólki kleift að fylgjast með stöðu sinna mála og fá skýr svör án óþarfa tafa. Möguleikarnir eru endalausir

Traust til stjórnsýslunnar byggist á gagnsæi, skilvirkni og virðingu fyrir hverju erindi.  Ísafjarðarbær hefur alla burði til að standa sig vel á þessum sviðum og með áframhaldandi markvissum aðgerðum getum við eflt þjónustu við íbúa í uppbyggingu enn frekar.

Þetta þarf ekki að vera flókið. Við viljum að bæjarfélagið haldi áfram að bæta þjónustu við fólkið. Að áheyrn, svar og aðgerð fylgi hverju máli og sé sjálfsagður þáttur stjórnsýslunnar.

Valur Richter, 5 sæti á lista Viðreisnar í Ísafjarðarbæ