27 apr Vor fyrir vestan
Það er eitthvað einstakt við það að búa í samfélagi þar sem fólk þekkir hvert annað, heilsast út á götu og tekur höndum saman þegar á þarf að halda. Hér búum við ekki bara hlið við hlið, við búum saman. Það er styrkur sem ekki er sjálfgefinn og sem við eigum að vera stolt af.
Fólkið hér er hjartað í samfélaginu. Dugnaðurinn, frumkvæðið og viljinn til að láta gott af sér leiða sést alls staðar, í íþróttastarfi, menningu, skólum, fyrirtækjum og sjálfboðaliðastarfi. Það er þessi kraftur sem gerir samfélagið lifandi og gefur því sérstöðu, við sjáum það svo skýrt þegar vorið kemur með sinn ferska blæ.
Við sjáum það í börnunum okkar sem fá tækifæri til að blómstra, í fjölskyldunum sem byggja hér upp sitt líf og í þeim sem snúa heim aftur vegna þess að hér er gott að vera. Við sjáum það í þeim sem leggja á sig aukavinnu til að halda úti viðburðum, styðja við nágranna eða þróa nýjar hugmyndir sem gera samfélagið enn betra.
Möguleikarnir eru fjölmargir. Við höfum náttúruna, rýmið og frelsið til að skapa. Við höfum þekkinguna og reynsluna til að byggja upp öflugt atvinnulíf. Og við höfum samhuginn til að takast á við áskoranir og breyta þeim í tækifæri.
Það sem skiptir máli er að halda áfram að hlusta hvert á annað, styðja við það sem vel er gert og þora að hugsa stórt. Með samvinnu getum við gert enn meira, fyrir börnin okkar, fyrir fjölskyldurnar og fyrir framtíðina.
Samfélagið okkar er ekki bara góður staður til að búa á, það er staður þar sem hægt er að láta drauma rætast. Og það er eitthvað sem við eigum öll þátt í að skapa, á hverjum degi.
Sif Huld Albertsdóttir, 2. sæti Viðreisnar í Ísafjarðarbæ.