Fjölgun sveitarstjórnarfulltrúa um allt land

Við kusum nýjar sveitarstjórnir um liðna helgi. Upp úr kössunum komu 10 sveitarstjórnarfulltrúar Viðreisnar; tveir í Reykjavík, tveir í Hafnarfirði auk fulltrúa í Kópavogi, Mosfellsbæ, Árborg, Akranesi, Ísafjarðarbæ og Múlaþingi. Auk þessara fulltrúa er Viðreisnarfólk nú sveitarstjórnarfulltrúar á óháðum listum á Vestfjörðum, Norðvesturlandi og Suðurlandi.

Viðreisn stendur því mjög keik eftir þessar kosningar. Við höfum aldrei fengið jafnmörg atkvæði í borgarstjórnarkosningum og nú, þar sem við tvöfölduðum fjölda borgarstjórnarfulltrúa. Við fengum 16% atkvæða í Ísafjarðarbæ og vorum örfáum atkvæðum frá því að fá þar tvo fulltrúa. Það var í fyrsta sinn sem boðið var fram undir nafni Viðreisnar í Ísafjarðarbæ. Við fengum rúm 14% í Hafnarfirði og höfum aldrei verið þar sterkari. Það voru fleiri sem kusu okkur í Mosfellsbæ en áður. Við erum í fyrsta sinn með kjörinn fulltrúa á Akranesi, Árborg og Múlaþingi.

Það skiptir líka máli hvernig við spilum úr okkar atkvæðamagni. Í Ísafjarðarbæ er Viðreisn í meirihlutaviðræðum við Framsóknarflokkinn. Spennandi er að sjá hvort Viðreisn hefji einnig formlegar meirihlutaviðræður í öðrum sveitarfélögum.