28 maí Meirihluti borgarstjórnar kynntur
Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn hafa myndað meirihluta í Reykjavík. Samkvæmt samstarfssáttmála ætla flokkarnir að svara ákalli borgarbúa eftir breytingum í Reykjavík.
Mikilvægt er að ráðast í róttækar breytingar á stjórnskipulagi og rekstri borgarinnar, nýta tíma og fjármuni betur með það að markmiði að bæta þjónustu. Samstarfsflokkarnir ætla að hlusta á ólíkar raddir borgarbúa, ávinna sér traust og vinna að sátt um framtíð Reykjavíkur.
Mæta þörfum en breyta þeim ekki
Reykjavík á að veita framúrskarandi þjónustu og setja hagsmuni íbúa í fyrsta sæti. Þess vegna setja flokkarnir málefni fjölskyldunnar í forgang. Þeir munu blása til stórsóknar í skólamálum, innleiða fjölbreyttar lausnir í leikskóla- og daggæslumálum og vilja auka aðgengi barna að skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Huga þurfi vel að eldra fólki og tryggja því áhyggjulaust ævikvöld í Reykjavik.
Nýr meirihluti ætlar í störfum sínum að fjárfesta í innviðum hverfanna, stórauka húsnæðisuppbyggingu og koma fólki hraðar á milli staða. Þeir vilja tryggja samkeppnishæfni borgarinnar með því að styðja við atvinnulíf, menningu og skapandi greinar. Reykjavík á að vera lifandi og skemmtileg, frjálslynd en ekki stjórnlynd og leggja áherslu á að að mæta þörfum en ekki breyta þeim.
Lykiláherslur sáttmálans eru eftirfarandi:
- Við ætlum að auglýsa eftir vinnustöðum til samstarfs um rekstur leikskóla eða daggæslu.
- Við ætlum að setja okkur mælanleg markmið um aukinn árangur í skólastarfi og stefna að skólakerfi í fremstu röð.
- Við ætlum að hefja samtal við ríkisstjórnina og nágrannasveitarfélög um endurskoðun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins, fjármögnun hans og framkvæmdahraða.
- Við ætlum að endurskoða fyrirhugað deiliskipulag við Suðurlandsbraut í samstarfi við hagaðila.
- Við ætlum að endurskoða breytingar á gatnamótum við Hólabakka.
- Við ætlum að stytta gjaldskyldutima á bílastæðum í miðborginni í samvinnu við íbúa og fyrirtæki.
- Við ætlum að breyta fyrirliggjandi skipulagi nýrra hverfa i Keldnalandi og Úlfarsárdal og hefja skipulag nýrra framtíðarhverfa á Kjalarnesi, Geldingamesi, Gufunesi og Granda.
- Við ætlum að lengja opnunartima sundlauga til klukkan 22.
- Við ætlum að ráðast í hagræðingar og stjórnkerfisbreytingar í borgarkerfinu með það að markmiði að auka skilvirkni og draga úr sóun.
- Við ætlum að bjóða út sorphirðu í einu hverfi borgarinnar í tilraunaskyni svo undirbúa megi rekstrarútboð á allri sorphirðu borgarinnar.
- Við ætlum að kortleggja aðstöðumál ipróttafélaga og fjárframlög til þeirra svo forgangsraða megi verkefnum og tryggja jafnræði milli félaga.
- Við ætlum að efla stoðþjónustu við börn inni í skólum borgarinnar.
- Við ætlum að tryggja að öll börn geti tekið þátt í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi.
- Við ætlum að bjóða tekjulágu eldra fólki 60.000 króna árlegan frístundastyrk
- Við ætlum að lækka fasteignaskatta á íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði.
- Við ætlum að standa vörð um og efla græn svæði borgarinnar og ráðast í skógræktarátak.
Ítarlegri verkefnalisti verður gerður aðgengilegur á vefsíðunni verkefnalisti.is þegar nýr meirihluti tekur formlega við störfum 2. júní næstkomandi.