29 maí Opinn málfundur um stjórnarskrá
Stjórnarskráin og hugsanlegar breytingar á henni hafa verið mikið í umræðunni að undanförnu. Brýnt er að skoða málið gaumgæfilega og því heldur Viðreisn opinn málfund á þriðjudag.
Tveir frummælendur flytja erindi um stjórnarskrá Íslands og sitja síðan fyrir svörum fundargesta:
Pawel Bartoszek, stærðfræðingur og formaður nefndar stjórnlagaráðs.
Salvör Nordal, forstöðumaður Siðfræðistofnunar og formaður stjórnlagaráðs.
Fundurinn verður haldinn í Viðreisnarsalnum, Ármúla 42 þriðjudaginn 31. maí, klukkan 17:00.
Umræður verða að ræðum loknum. Allir velkomnir og hvattir til þess að mæta!