25 sep Í lokuðu bakherbergi
Það slitnaði upp úr stjórnarsamstarfi og það eru kosningar fram undan. Mörg góð mál eru komin í bið vegna stöðunnar og þar er af ýmsu að taka. Ég gæti notað plássið í að kynna ýmis mikilvæg mál sem ég hafði persónulega á prjónunum eða flokkurinn minn, Viðreisn. Mál á borð við skilgreiningu á nauðgun út frá samþykki, rannsókn á aðdraganda að útgáfu á starfsleyfi til kísilverksmiðju í Helguvík, þingsályktun um tryggingu gæða, hagkvæmni og skilvirkni meiriháttar opinberra fjárfestinga, umræðu um sjálfstæði fjölmiðla o.fl.
En ég ætla að ræða um þverpólitísk mál sem snerta framtíð og velferð ákveðins hóps fólks. Fólks sem á annað og betra skilið af okkur stjórnmálamönnum en að verða einhver afgangsstærð í hita leiksins. Þar á ég í fyrsta lagi við mál sem varðar mikilvæga og margsamþykkta þjónustubót fyrir fatlað fólk. Svokallaða notendastýrða persónubundna aðstoð (NPA) sem skiptir sköpum fyrir það fólk sem nýtur slíkrar þjónustu.
Annað mál varðar breytingar á útlendingalögum til að bæta stöðu flóttabarna á Íslandi. Undanfarið hafa þingmenn, þvert á flokka, lagt mikla vinnu í að koma þessum tveimur málum í höfn. En nú eru blikur á lofti.
Síðustu daga hafa formenn allra flokka á þingi fundað nær daglega bak við luktar dyr til að freista þess að ná samkomulagi um tiltekin mál sem brýnt er að afgreiða fyrir kosningar. Þeirra á meðal eru breytingar á hegningarlögum hvað varðar margumrædda uppreist æru. Þetta er eins og alþjóð veit löngu tímabært. Ég set hins vegar spurningamerki við að tíma formannanna sé best varið, dag eftir dag, í að ræða niðurstöðu þar sem er í takt við það sem allir flokkar vilja.
Umræðan virðist hafa tekið full langan tíma á kostnað einstaklinga sem eiga ekki að þurfa að bíða eftir því að nýtt þing verði kosið með úrlausn sinna mála. Og fyrir Mary og Haniye verður það einfaldlega of seint.
Ef formenn flokkanna ná ekki að afgreiða þetta þá þarf að útskýra tæpitungulaust hvað veldur. Það þarf að opna bakherbergið og lofta út.
Höfundur er þingflokksformaður Viðreisnar. Grein birtist fyrst á visir.is 25. september 2017.