03 júl Svar við svari Heiðrúnar
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, ritar ágæta grein á Vísi í gær þar sem hún dásamar mjög skýrslu sem ég skrifaði árið 2010. Ég þakka henni hólið. Hún vill meina að niðurstaða skýrslunnar hafi elst vel. Því er ég ekki fyllilega sammála.
Frá því framsal aflaheimilda var gefið frjálst árið 1991 hafa miklar breytingar átt sér stað í íslenskum sjávarútvegi. Samþjöppun hefur orðið á aflaheimildum, veiðar og vinnsla hafa verið samræmdar og tæknivæðing hefur aukist mikið, svo nokkuð sé nefnt. Afleiðingin er að afkoma hefur batnað til mikilla muna. Þegar umrædd skýrsla var skrifuð var afkoma í sjávarútvegi á Íslandi hins vegar að jafnaði ekki betri en í öðrum atvinnugreinum. Ég, ásamt mörgum kollegum mínum, taldi því sérstaka skattlagningu sjávarútvegs óraunhæfa, af ástæðum sem Heiðrún tíundar ágætlega í grein sinni – með tilvitnunum í mig.
Þetta breyttist árið 2009. Arðsemi tók mikinn kipp upp á við og hefur haldist mjög góð síðan, eins og sjá má t.d. hér. Við þetta breyttust að sjálfsögðu forsendurnar sem eldri greining hafði byggt á. Veiðigjald var í kjölfarið hækkað mjög mikið og nemur nú um þriðjungi umframhagnaðar að mati Heiðrúnar.
Heiðrún vill meina að þessi breyting hafi ekki áhrif á fyrri niðurstöður. Það fæ ég ekki skilið. Ég hefði einmitt haldið að það að eiga aflaheimildir sé betra þegar afkoma er góð en þegar hún er slæm. En látum það liggja á milli hluta.
Röksemdir Viðreisnar fyrir samningaleið snúa að skilvirku mati á virði þess að hafa aðgang að takmarkaðri auðlind sem og því að verja útgerðina fyrir þeirri pólitískri óvissu sem hún býr við í dag. Sala ríkisins á nýtingarsamningum þegar þeir hafa runnið út kemur þá í stað veiðigjalds.
Ég hef ítrekað bent á að hægðarleikur er að útfæra samningaleið þannig að umfang veiðigjalds fari ekki yfir þau 33% sem það er í dag. Það er gert með því að hafa samningana nægilega langa til að 67% falli enn til útgerðarinnar, því í upphafi er samningunum úthlutað á grundvelli núverandi úthlutunar aflaheimilda.
Ef útgerðin er með sömu tekjur hvernig getur þá þessi kerfisbreyting sett allt á hliðina? Þetta fæ ég ekki með nokkru móti skilið.
Ég er því afar hissa á þeirri fullyrðingu Heiðrúnar að samningaleið sem aflar sömu tekna og veiðigjald þurrki út eignir útgerðarinnar. Ég hefði afar gaman af að sjá þá útreikninga.
Höfundur er varaformaður Viðreisnar og prófessor í auðlindahagfræði við HÍ.