17 feb Frambjóðendur í prófkjöri Viðreisnar í Reykjavík
Framboðsfrestur fyrir prófkjör Viðreisnar í Reykjavík rann út á hádegi í dag, 17. febrúar 2022. Kosið verður um fjögur efstu sætin á framboðslista Viðreisnar og hefur kjörstjórn staðfest kjörgengi sjö frambjóðenda.
Frambjóðendur í prófkjörinu eru, í stafrófsröð:
- Anna Kristín Jensdóttir
- Diljá Ámundadóttir Zoega
- Erlingur Sigvaldason
- Geir Finnsson
- Pawel Bartoszek
- Þórdís Jóna Sigurðardóttir
- Þórdís Lóa Þórhallsdóttir
Gengið verður til atkvæða föstudaginn 4. mars og laugardaginn 5. mars. Kosningarétt hafa félagar í Viðreisn sem skráðir hafa verið í flokkinn fyrir miðnætti 1. mars 2022, hafa lögheimili í Reykjavík og hafa náð 16 ára aldri á kjördag.
Á vidreisn.is/profkjor er að finna kynningu á frambjóðendum og nánari upplýsingar um fyrirkomulag prófkjörsins.
Kjörstjórn í prófkjöri Viðreisnar í Reykjavík.