Fréttatilkynning: Stjórnarandstaðan bregst við fjöldabrottvísun

Þingflokkar Samfylkingarinnar, Flokks fólksins, Pírata og Viðreisnar leggja sameiginlega fram frumvarp til að bregðast við stöðu þeirra einstaklinga sem nú stendur til að senda úr landi með fjöldabrottvísun. Þeir leggja til að nýtt ákvæði verði sett til bráðabirgða sem felur í sér að dráttur á málsmeðferð umsækjenda um alþjóðlega vernd, sem varð vegna heimsfaraldurs COVID-19, verði ekki talinn á ábyrgð umsækjendanna sjálfra og því skuli taka umsóknir þeirra til efnislegrar meðferðar hafi þeir verið hér í 12 mánuði eða lengur. Þingflokkarnir leggja einnig til að umsækjendur sem sóttu um vernd á meðan heimsfaraldur COVID-19 stóð sem hæst og hafa verið hér á landi í 18 mánuði eða lengur, fái dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.

Fjöldabrottvísunin sem hefur verið í undirbúningi af hálfu íslenskra stjórnvalda er ekki lagaleg nauðsyn, heldur yrði slík framkvæmd pólitísk ákvörðun stjórnvalda. Með framlagningu þessa frumvarps leggja flutningsmenn til almenna lausn fyrir þennan tiltekna hóp fólks á flótta, einstaka aðgerð líkt og nauðsynlegt hefur verið að gera í fjölmörgum öðrum málum vegna heimsfaraldursins. Flutningsmenn telja óásættanlegt að tafir sem tengjast heimsfaraldrinum verði taldar á ábyrgð umsækjenda sjálfra, enda var það ekki markmið núgildandi laga, heldur framkvæmd sem stjórnvöld hafa tekið upp.

Flutningsmenn frumvarpsins telja að með því sé verið að bregðast við fyrirætlunum stjórnvalda um að brottvísa einstaklingum og fjölskyldum sem hafa verið hér í lengri tíma vegna þeirra sérstöku aðstæðna sem uppi hafa verið í heiminum vegna heimsfaraldursins. Í þeim aðstæðum, líkt og mörgum öðrum þarf sértækar aðgerðir og því eru lögð til bráðabirgðaákvæði sem eingöngu ná til þess hóps sem hér hefur dvalið um langt skeið vegna heimsfaraldursins. Óvenjumargir umsækjendur um alþjóðlega vernd hafa vegna faraldursins dvalið hér á landi um lengri tíma, þar á meðal börn og einstaklingar í sérstaklega viðkvæmri stöðu, sem hafa vegna tímans byggt upp tengsl við landið. Það er nauðsynlegt að bregðast strax við þessum aðstæðum og tryggja það að við sendum ekki fólk, sem þarf á vernd að halda, af landi brott og í aðstæður þar sem öryggi þess og heilsu er ógnað.

Frumvarpið er í yfirlestri verður dreift á Alþingi á mánudaginn.