19 okt Notendur strætó eru augljóslega vandamálið
Eins skemmtilegt og okkur Íslendingum þykir að rífast um Borgarlínu, mislæg gatnamót og jarðgöng þá virðist, þrátt fyrir allt, ríkja samhljómur um mikilvægi þess að hafa hér öflugar almenningssamgöngur. Af þeim sökum er forvitnilegt að fylgjast með hversu illa Strætó gengur að svara eftirspurn sinna notenda.
Á þessu ári, nú þegar við höfum ákveðið að slökkva endanlega á upplýsingafundum almannavarna og snúa aftur til lífsins fyrir veiruna skæðu, hefur gengið vel að fjölmenna á viðburði á borð við Gleðigönguna og Menningarnótt. Það er ef við tökum út fyrir sviga getu Strætó til að vera með tilbúna vagna til að mæta þeim fjölmenna hópi fólks sem skilur bílana sína eftir heima. Það er eflaust hægt að fyrirgefa slík mistök einu sinni en því miður gerðust þau oftar á þessu ári.
Stór hópur þjóðarinnar og ferðamanna sækir næturlíf borgarinnar hverja helgi og eiga leigubílstjórar í fullu fangi við að ferja næturgesti heim að djammi loknu. Biðin í leigubílaröðinni verður fjarri því að verða auðveldari þegar vetur konungur bankar uppá á næstu vikum. Því var sannarlega skref í rétta átt fyrir Strætó að bjóða upp á næturstrætó svo auðvelda mætti ferðalagið heim og auka sömuleiðis öryggi borgarbúa í leiðinni. Það verður því að teljast furðulegt skref hjá Strætó að fella niður þessa þörfu þjónustu eftir mjög skamman reynslutíma, bæði á vel nýttum ferðum og hinum sem síður voru nýttar. Næturlífið er sannarlega ekki að fara í vetrarfrí, af hverju ætti þá næturstrætó að gera það?
Þrátt fyrir að áðurnefndur næturstrætó hafi hætt að ganga um klukkustund áður en eftirspurnin er hvað mest eftir fari heim (þegar krár og skemmtistaðir loka), verið illa auglýstur, með slæmu aðgengi og almennt flóknu greiðslukerfi í boði Klapps, þá voru farþegar í hverjum vagni um 14-16 manns að meðaltali síðustu mánuði. Eftirspurnin er því klárlega til staðar þó hún væri ekki nóg í augum Strætó. Því var ákveðið að hætta að bjóða upp á þessa þjónustu fyrir borgarbúa.
Út frá þessu má sjá nokkuð skýr skilaboð frá Strætó: Við, notendurnir erum alfarið vandamálið í þessum efnum og verðum við því að bretta upp á ermar og verða duglegri að sætta okkur við þá síversnandi þjónustu sem við greiðum síhækkandi verð fyrir.