16 nóv Tillögur og ábendingar Viðreisnar vegna fjárhagsáætlunar 2023
Fyrri umræða um fjárhagsáætlun Hafnarfjarðar fór fram þann 9. nóvember. Það er því við hæfi að upplýsa um þær áherslur sem Viðreisn leggur til að teknar verði til skoðunar áður en endanleg áætlun verður samþykkt í desember. Viðreisn leggur til að:
- Hlutfall tómstunda og félagsmálafræðinga verði aukið í skólum og félagsmiðstöðvum.
- Hækka frístundastyrkinn í takt við verðlagsþróun
- Stilla leikskólagjöldum í hóf þar sem launahækkanir, innri húsaleiga og rafmagn og hiti, sem eru stærstu kostnaðarliðir við rekstur leikskóla, hafa ekki hækkað mikið. Viðreisn leggur til 4,5% hækkun um áramót. Endurskoða má þá hækkun þegar áhrif launahækkana koma í ljós.
- Styðja betur við listsköpun og skapandi greinar hjá ungmennum Hafnarfjarðar
- Forgangsraða fé til að styðja betur við skólastarfið með fjölgun fagmenntaðra iðju- og þroskaþjálfa, talmeinafræðingum og sálfræðingum.
- Frístundastyrkurinn nái til barna frá 5 ára aldri.
- Ungmenni fái niðurgreiðslu á árskortum Strætó
- Opnunartimi sundlauga og bókasafns verði lengdur
- Forgangsraða meira fé til göngu- og hjólastíga.
- Forgangsraða fé til að straumlínulaga og einfalda vinnu hjá skipulagssviði með það að markmiði að stytta afgreiðslutíma erinda sem þangað berast
- Forgangsraða meira fé til viðhalds á skólahúsnæði
Viðreisn setur einnig spurningamerki við þá aðferðafræði við lækkun fasteignagjalda að hækka fasteignaskattinn en lækka vatns og fráveitugjöld. Eins og allir vita hefur fasteignamat snarhækkað en það er sá stofn sem fasteignaskatturinn tekur mið af. Í stað þess að lækka skattprósentuna er henni haldið óbreyttri en þjónustugjöld lækkuð. Skilningur okkar í Viðreisn er sá að gjaldskrá vatns- og fráveitufyrirtækja skuli miða út frá kostnaði við veitta þjónustu. Það að snarlækka gjaldskrána er annað hvort merki um að gjaldskrá hafi verið of há í langan tíma eða þá kostnaður við veitta þjónustu hafi skyndilega lækkað til muna. Það er því mikilvægt að fram komi lögfræðiálit um lögmæti þessa gjörnings. Þessi gjörningur er í besta falli á gráu svæði, hversu dökkgráu skal ósagt látið en lögfræðiálit getur mögulega sagt til um litakóða gráa litsins.