Af­neitun um ís­lenskt heil­brigðis­kerfi

Guðbrandur Einarsson

Eitt af stóru vandamálunum Landspítalans er að þar liggja inni einstaklingar sem ættu að fá þjónustu í annars konar úrræði. Þjónustuúrræði sjúkrahúsa er dýrasta úrræði sem verið er að veita og því vekur það athygli að þessi staða skuli vera uppi.

Inni á sjúkrastofnunum liggja hundruð aldraðra einstaklinga sem í raun ættu og þyrftu að vera í annars konar úrræði. Dvöl á hjúkrunarheimili er það úræði sem aldraðir einstaklingar ættu eiga rétt á þegar sú staða er komin upp, að viðkomandi getur ekki dvalið heima. Það úrræði er að talsvert ódýrara en dvöl á sjúkrastofnun og er um leið talsvert vistlegra og heimilislegra en að dvelja i kuldalegu herbergi á sjúkrahúsi.

Hvers vegna ekki verið komið í veg fyrir að þessi staða kæmi upp og hvers vegna ekki sé verið að gera allt til þess að breyta þessari stöðu er í mínum huga illskiljanlegt, þar sem það hefði í för með sér verulega hagræðingu innan heilbrigðiskerfisins sem ekki er vanþörf á.

Framkvæmdasjóður aldraðra misnotaður

Framkvæmdasjóður aldraðra var settur á laggirnar á sínum tíma til þess að fjölga hjúkrunarrýmum og sjóðurinn fjármagnaður með sérstökum nefskatti. Hefðu þeir fjármunir sem runnið hafa til sjóðsins allir verið nýttir til uppbyggingar hjúkrunarheimila væri staðan allt önnur. Heimild var gefin til þess að nýta hluta þess fjármagns sem hefur runnið til sjóðsins í beinan rekstur og það er m.a. ástæðan fyrir þessari bágu stöðu. Það blasir því við æpandi þörf fyrir uppbyggingu hjúkrunarrýma um allt land. Svo er hitt að uppbygging á vegum ríkisins á sér því miður stað á hraða snigilsins. Sem dæmi vil ég nefna að skrifað var undir samning um byggingu hjúkrunarheimilis í Reykjanesbæ í febrúar 2019 eða fyrir fjórum árum síðan og nú, að fjórum árum liðnum, eru framkvæmdir enn ekki hafnar.

Landspítalinn fullfjármagnaður?

Fjármálaráðherra hefur ítrekað haldið því fram að Landspítalinn sé fullfjármagnaður en er það svo? Hvers vegna er þá gjörgæslan í þessari stöðu? Hvers vegna þarftu að bíða í mörg ár eftir að komast í nauðsynlega aðgerð eins og augasteinaskipti eða liðskiptaaðgerðir. Er það merki um að spítalinn sé fullfjármagnaður að ekki er verið að gera ráð fyrir auknu fjármagni í ný og betri lyf.

Vanfjármagnað heilbrigðiskerfi

Því miður er að svo að hvert sem litið er þá blasir við sú staðreynd að íslenskt heilbrigðiskerfi er í raun vanfjármagnað og fyrir það líður fjöldi fólks. Sú afsökun að ekki fáist starfsfólk dugar ekki til að réttlæta stöðuna því þar sem greidd eru góð laun og aðbúnaður er góður skortir ekki starfsfólk.

Að börn fái ekki þjónustu við hæfi er ekki forsvaranlegt og því þarf að breyta. Til þess að það gerist þá þarf ríkisstjórnin að láta af þeirri afneitun sinni um að fullfjármögnun aldrei getur orðið. Nú er rétti tíminn fyrir betri forgangsröðun og að þarfir almennings séu settar í fyrsta sæti.

Greinin birtist fyrst á Vísir.is 8. febrúar