Hvar er fót­spor stjórn­valda gegn vinnumansali?

Tugir ef ekki hundruð erlendra starfsmanna eru lokkuð til landsins á fölskum forsendum.

Síðan er þetta fólk svikið um umsamin og boðleg laun.

Það býr í óboðlegu húsnæði en borgar fyrir það himinháa leigu.

Þessar fréttir varða okkur sem neytendur og sem hluti af samfélagi. Og stjórnvöld verða að láta sig ömurleg og alvarleg afbrot eins og þessi sig varða.

Hvar er skýr tónn ríkisstjórnarinnar sjálfrar um að þessi brot á íslenskum landslögum verði ekki liðin?

Um að menn og fyrirtæki sæti ábyrgð sem brjóta svona gegn fólki? Hvers vegna heyrum við ekki afdráttarlausa yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að menn ætli sér að ná tökum á svona brotastarfsemi?

Þessi fyrirtæki brjóta um leið gegn heilbrigðri samkeppni á markaði. Heilbrigðar leikreglur eru virtar að vettugi.

Í fyrra starfi sem saksóknari sat ég einu sinni ráðstefnu erlendis þar sem vinnumansal var til umfjöllunar. Þar var sögð saga af norskum stjórnvöldum sem fóru í aðgerðir meðvituð t.d. um hlutverk sitt sem stórkaupandi á vöru og þjónustu. Meðvituð um að fótspor þeirra á markaði hefur áhrif. Og meðvituð um að skilaboð skipta máli.

Stórir aðilar sem smáir eiga að hlusta á þessi sorglegu viðtöl við fólk sem birtust í Kveik. Fólk sem hingað kom til að vinna en var svikið.

Við eigum að gera meira en bara að vera meðvituð.

Við tölum gjarnan um fótspor okkar sem neytendur, við gerum kröfur um að matvara sé framleidd á viðunandi hátt. Fyrirtæki og fólk kolefnisjafnar alls konar kaup. Við hlustum á boðskap um umhverfisvænan ferðamáta. Við viljum boðlegar aðstæður dýra í matvælaiðnaði. Að eggið sem við borðum komi frá hamingjusamri hænu.

Það er í þessu samhengi algerlega galið og óþolandi ef lægsti punkturinn er framkoma við fólk, þolendur mansals. Það eru sex ár liðin frá því að ríkisstjórnin boðaði aðgerðir. Lítið gerðist af hálfu stjórnvalda síðan. Og allt eftirlit til að gæta hagsmuna almennings og neytenda er litið hornauga af ríkisstjórninni.

Skilaboð ríkisstjórnarinnar núna um að brot hafi afleiðingar er algjört fyrsta skref. Algjör lágmarkskrafa.

 

Greinin birtist fyrst á Vísi 27. september 2024.