01 okt Viðreisn er tilbúin
„Viðreisn er ekki eins og eitthvað þriggja sekúndna TikTok myndband. Meira svona eins og… Spegillinn á RÚV“ sagði manneskja sem ég met mikils við mig um daginn. Svo brosti hún undurblítt. Þessi góða vinkona mín hefur að mörgu leyti rétt fyrir sér og þetta er eitthvað sem við tökum til okkar. Þó við séum ekki endilega mikið fyrir að troða flóknum úrlausnarefnum samfélagsins í einfaldar umbúðir og selja þær sem slíkar. Að ná tökum á vöxtum og verðbólgu, koma á stöðugleika á húsnæðismarkaði, finna lausnir á biðlistavanda innan heilbrigðiskerfisins, fjármagna innviðaskuldir (efnislegar og mannlegar), koma loftslagsaðgerðum í framkvæmd, efla menntamálin og tryggja öryggi í landinu okkar. Allt eru þetta dæmi um miklar áskoranir sem bíða stjórnmálanna.
Góð stemning í Viðreisn
Ég hef síðustu vikur fundið fyrir auknum áhuga á okkur í Viðreisn. Sífellt fleiri koma að máli við mig til að lýsa yfir stuðningi við flokkinn eða til að hvetja okkur til dáða til að standa keik með okkar kjarnamálum. Í stað þess að hlaupast undan stefnu eða sópa henni undir teppið. Mér þykir vænt um þá hvatningu.
Þessi meðbyr kristallaðist svo í flottu Haustþingi Viðreisnar um síðastliðna helgi sem haldið var í Hlégarði í Mosfellsbæ. Það voru ekki nægilega margir stólar í salnum til að rúma allt það kraftmikla fólk sem flykktist á fundinn. Einhver frumkraftur leystist úr læðingi sem var áþreifanlegur. Bjartsýni, einlægni og framsýni einkenndi fundarmenn. Sóknarhugur til að gera betur fyrir venjulegt fólk. Innkoma nýs Viðreisnarfólks er síðan mikill styrkur fyrir flokkinn. Það eru spennandi tímar fram undan.
Tími frjálslyndis runninn upp
Ég ætla að leyfa mér að binda vonir við það að næstu kosningar muni hafa í för með sér frjálslyndissveiflu. Þar sem almenningur hafnar þeirri skautun jaðranna sem felast í íhaldssömum hægri eða vinstri flokkum. Með Viðreisn höfum við frjálslyndan valkost þar sem við tryggjum þéttofið velferðarnet á sama tíma og við stundum framsýna og ábyrga hagstjórn. Við þurfum skynsemi í stjórnmálin. Við þurfum mennsku í stjórnmálin. Við þurfum langtímasýn og ákvarðanir. Og kjark til að fylgja þeim eftir. Við verðum að þokast áfram og horfa til framtíðar. Við ætlum okkur áfram og frá þessari meinlegu kyrrstöðu sem einkennt hefur stjórnarheimilið á liðnum árum. Og við ætlum ekki til baka eins og Kamala Harris, okkar kona fyrir vestan hefur sagt í sinni baráttu.
Haustþingið var gott veganesti fyrir okkur í Viðreisn. Við skerptum á málefnum og þéttum raðirnar. Næsta verkefni innan flokks er að drífa sem fyrst í að halda prófkjör, ef svæðisráðin kjósa svo. Kosningabaráttan er hafin. Það er verk að vinna fyrir fólkið okkar í landinu. Viðreisn er tilbúin.
Greinin birtist fyrst á Vísi 1. október 2024