Sameiginleg viðmið varðandi fyrirspurnir um stefnu stjórnmálaflokka

Í aðdraganda kosninga berast stjórnmálaflokkum fjölmörg erindi og fyrirspurnir frá hagsmunasamtökum, áhugamannafélögum og einstaklingum um stefnu flokkanna í hinum ýmsu málum. Það er sjálfsagður liður í gangverki lýðræðsins, sem er bæði til þess fallinn að auðvelda kjósendum að taka upplýstar ákvarðanir og skerpa á stefnumótum stjórnmálaflokka.

Til þess að unnt sé að bregðast við slíkum fyrirspurnum fljótt, örugglega og af vandvirkni, óska stjórnmálaflokkar sem fulltrúa eiga á Alþingi, þess að fyrirspyrjendur gæti að því að spurningarnar séu skýrar og einfaldar, ekki margþættar eða skilyrtar, og ekki séu fleiri en þrjár í hverju erindi.  Ekki verður hægt að tryggja svör við spurningum sem berast síðar en fimmtudaginn 21. nóvember.