29 nóv Breytum þessu saman!
Kæra þjóð, Takk fyrir samveruna og samtölin síðustu vikur. Framtíðin er björt og saman getum við verið aflvaki breytinga. Hjarta mitt er fullt af þakklæti yfir þeim frábæru viðtökum sem við höfum fengið. Réttsælis og rangsælis höfum við þreytt hringinn í kring um landið frá Flateyri til Fáskrúðsfjarðar og aftur til baka.
Við skynjum sterkt þreytuna sem þjóðin finnur fyrir. Þreytu á síhækkandi álögum og minnkandi ráðstöfunartekjum, þreytu á ráðaleysi kerfisins gagnvart hrakandi geðheilsu hjá unga fólkinu okkar og þreytu á stjórnmálamönnum sem hvorki þora að taka ákvarðanir né bera ábyrgð á nokkrum sköpuðum hlut.
Ég hef líka heyrt drauma ykkar um spennandi framtíð. Kosningabaráttan hefur minnt mig enn og aftur á þá fórnfýsi og samkennd sem einkennir harðduglegt fólk um allt land sem mætir verkefnum sínum og áskorunum hvern dag af æðruleysi.
Ef við berum þá gæfu að fá hér nýja samhenta ríkisstjórn sem nálgast verkefni sín með sömu fórnfýsi og þið, og sýnir sömu samkennd og íslenska þjóðin, þá eru engin fjöll sem við getum ekki klifið saman.
Við höfnum andúð og sundurlyndi
Við höfum verið trú okkar stefnu og málefnum í þessari kosningabaráttu. Við höfum hafnað þeirri leið að tala niður aðra flokka til þess að upphefja okkur. Þeir flokkar sem hafa reynt að setja andúð, misklíð og sundurlyndi á dagskrá hafa uppskorið sífellt minna fylgi.
Eftir sjö ára stöðnun fær nú þjóðin loks tækifæri til að breyta um kúrs. Ríkisstjórn sem var stofnuð utan um stöðnun hefur loks þrotið örendið. Á morgun fáið þið tækifæri til þess að leggja ykkar lóð á vogarskálarnar og kosið að lækka vexti, bæta geðheilsu og að færa landið í frelsisátt.
Valið sem við stöndum frammi fyrir er hvort við ætlum að horfa hugrökk og bjartsýn fram á veginn eða hvort hræðsla og einangrun eigi að stýra för á komandi árum. Ísland á skilið ríkisstjórn sem hefur trú á framtíðinni og vill berjast fyrir betra samfélagi fyrir okkur öll.