Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar í Reykjavík

Björg Magnúsdóttir var kjörin oddviti Viðreisnar í  Reykjavík í rafrænu leiðtogaprófkjöri sem fram fór í dag. Hún mun því leiða lista Viðreisnar í komandi borgarstjórnarkosningum.

Björg hlaut 1011 atkvæði í leiðtogaprófkjörinu eða 48% af gildum atkvæðum.

„Ég er ofboðslega þakklát fyrir öll þau sem treystu mér til að leiða listann í borgarstjórnarkosningunum í vor ,“ segir Björg. „Ég er líka mjög þakklát meðframbjóðendum mínum sem háðu drengilega og jákvæða baráttu, í anda Viðreisnar. Þetta er bara fyrsta skrefið. Í vor þarf Reykjavík viðreisn með litlu „v“ og Viðreisn með stóru „V“.

Úrslitin voru kynna á fjölmennri kosningavöku á Petersen í kvöld.

Á kjörskrá voru 2934 og var kjörsókn 72%.

 

Atkvæði fóru sem hér segir:

Nafn 1. sæti Hlutfall
Björg Magnúsdóttir 1011 48,0 %
Aðalsteinn Leifsson 587 27,9 %
Róbert Ragnarsson 479 22,8 %
Signý Stefánsdóttir 28 1,3 %
Gild atkvæði 2105