Bakkakot og fjölmiðlar

Mennirnir sem sögðu sögu sína á dögunum í Kveik um harðræðið sem þeir þurftu að þola sem litlir drengir á bænum Bakkakoti eiga allt gott skilið. Það þarf hugrekki og kjark til að stíga svona fram og opinbera sára reynslu úr barnæsku frammi fyrir alþjóð.

Það er stórt skref fyrir þá að stíga en jafnframt verðmætt skref fyrir okkur hin því það er okkar að gera allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja að svona ofbeldi gegn börnum líðist ekki.

Vonandi upplifa þeir á eigin skinni að það er mikill vilji hjá samfélaginu sem áður brást þeim að bregðast ekki aftur. Við skuldum þeim heiðarlegt og ærlegt uppgjör. Það þarf að rannsaka það sem gerðist í Bakkakoti og greiða þeim bætur. Fyrir því eru fordæmi enda er það eðlilegt. Kerfi sem brýtur á börnum þarf að stokka upp og laga.

Mér finnst mjög sláandi hvað þetta er nærri okkur í tíma. Ég leyfi mér hins vegar að vona að svona alvarleg tilvik, nánast kerfisbundið ofbeldi, heyri sögunni til. Engu að síður blikka viðvörunarljós. Guðlaugur Kristmundsson, formaður Félags fósturforeldra, hefur stigið fast inn í þessa umræðu og bent á brotalamir sem ekki er hægt að hunsa. Hann líkir samskiptum við opinbera aðila um svona mál sem eyðimerkurgöngu. Stofnanir, sveitarfélög og ráðuneyti taki ábendingar ekki nægjanlega alvarlega.

Bón félagsins um betra og skilvirkara eftirlit hefur ekki verið sinnt og skellt skollaeyrum við ítrekuðum ábendingum um það sem betur má fara. Þessu hefur verið andmælt af Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála en í ljósi alvarleika málsins verður að eiga sér stað gagnrýnin umræða um þetta allt. Allt upp á borðið.

Og talandi um eftirlit. Enn eina ferðina er það öflug fréttavinnsla fjölmiðils sem flettir ofan af brotalömum kerfisins, í samstarfi við hugrakka einstaklinga. Vel gert Kveikur. Þetta sjáum við ítrekað. Okkar öflugu fjölmiðlar varpa aftur og aftur ljósi á það sem betur má fara í fortíð og nútíð. Og bæta með því samfélagið.

Núna var það Kveikur en aðrir miðlar hafa einnig staðið vaktina með prýði í gegnum tíðna. Um það eru fjölmörg dæmi. Mér finnst að við þurfum að hafa þetta allt í huga þegar rætt um umhverfi fjölmiðla og vinnuaðstæður blaða- og fréttamanna. Gagnrýnin frétta- og blaðamennska bætir samfélagið. Sláandi mál drengjanna sem dvöldu á Bakkakoti er enn ein staðfestingin á því að aðhaldshlutverk fjölmiðla er lykilatriði í lýðræðisríki. Fjölmiðlar hafa eftirlit með eftirlitinu sem bregst.

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 6. febrúar 2026