04 mar Karólína leiðir lista í Hafnarfirði
Á fjölmennum félagsfundi Viðreisnar í Hafnarfirði í gærkvöld var framboðslisti flokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar árið 2026 kynntur og samþykktur einróma. Karólína Helga Símonardóttir, framkvæmdastjóri og varaþingmaður, mun leiða listann. Í öðru sæti er Árni Stefán Guðjónsson, áfangastjóri í Flensborg og í því þriðja er Hjördís Hlíðberg verkefnastjóri.
Við uppstillingu listans var sérstök áhersla lögð á að endurspegla lýðfræðilega samsetningu bæjarins og tryggja fjölbreytni. Listi Viðreisnar í Hafnarfirði einkennist af sterkri blöndu af fyrri reynslu og nýjum röddum. Mikil og kraftmikil endurnýjun hefur átt sér stað í röðum flokksins þar sem 55% frambjóðenda koma inn með ferskan blæ, á meðan 45% búa yfir fyrri reynslu af sveitarstjórnarmálum.
Framboðslisti Viðreisnar í Hafnarfirði 2026 er þannig skipaður:
- Karólína Helga Símonardóttir, framkvæmdastjóri og varaþingmaður
- Árni Stefán Guðjónsson, áfangastjóri í Flensborg
- Hjördís Hlíðberg, verkefnastjóri
- Óli Örn Eiríksson, verkefnastjóri
- Sigrún Jónsdóttir, flugfreyja
- Júlíus Andri Þórðarson, framkvæmdastjóri LÍS
- Amanda K. Ólafsdóttir, skrifstofustjóri
- Sigurjón Ingvason, lögfræðingur
- Ágústa Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri og sjúkraþjálfari
- Bragi Hinrik Magnússon, ráðgjafi
- Karitas Möller, arkitekt
- Björn Sighvatsson, verkfræðingur
- Una Rán Tjörvadóttir, leiðbeinandi og nemi
- Ellert Þór Arason, rekstrarstjóri
- Jóhanna Guðrún Snæfeld Magnúsdóttir, lögfræðingur
- Aron Eydal Sigurðsson, þjónusturáðgjafi fyrirtækja
- Helga Björg Jóhönnu Arnardóttir, tónlistarmaður
- Auðunn Arnórsson, stjórnsýslufræðingur
- Erla Sigurlaug Sigurðardóttir, leiðsögukona
- Steinar Bragi Sigurjónsson, nemi
- Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra
- Örn H. Magnússon, fv. framkvæmdastjóri