05 mar Listi Viðreisnar í Kópavogi
María Ellen Steingrímsdóttir leiðir öflugan lista Viðreisnar í Kópavogi fyrir sveitarstjórnarkosningar 2026
Á fjölmennum fundi Viðreisnar í Kópavogi sem fram fór á 27 Mathús & bar í Kópavogi kynnti uppstillingarnefnd öflugan lista Viðreinsar í Kópavogi fyrir félagsmönnum Viðreisnar.
Listinn var einróma samþykktur við frábærar undirtektir.
María Ellen, oddviti, segist þakklát fyrir allt það frábæra fólk sem sóttist eftir að taka sæti á listanum – en á listanum er valin maður í hverju sæti.
Þar má nefna Sigrúnu Ólöfu Ingólfsdóttur, skólastjóra Hörðuvallaskóla, sem vakið hefur mikla athygli fyrir gagnrýni sína á úrræðaleysi vegna áskorana í menntakerfinu og Bryndísi Rut Logadóttur, varaformann Félags hjúkrunarfræðinga, sem hefur verið ötull talsmaður bættrar þjónustu við eldri borgara.
,,Ég hef fulla trú á því að nýr listi Viðreisnar í Kópavogi muni vekja athygli bæjarbúa og við hlökkum mikið til að kynna nýja stefnu sem hönnuð er með hagsmuni bæjarbúa á öllum aldri í huga” segir María Ellen oddviti Viðreisnar í Kópavogi.
Listi Viðreisnar í Kópavogi
- María Ellen Steingrímsdóttir – lögfræðingur
- Pétur Björgvin Sveinsson – varaþingmaður og starfsmaður þingflokks Viðresinar
- Arnar Grétarsson – knattspyrnuþjálfari og viðskiptafræðingur
- Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir – skólastjóri Hörðuvallaskóla
- Elvar Bjarki Helgason – sölu- og þjónustustjóri
- Bryndís Rut Logadóttir – hjúkrunarfræðingur
- Ísak Leon Júlíusson – laganemi
- Irpa Fönn Hlynsdóttir – framkvæmdastjóri
- Ágeir Þór Jónsson – kokkur og atvinnurekandi
- Sigurlín Margrét Sigurðardóttir – frumkvöðull og leiðsögumaður
- Andrés Pétursson – stjórnandi Nordplus
- Sóley Eiríksdóttir – sagnfræðingur
- Máni Þór Magnason – heilbrigðisfulltrúi hjá HEF
- Þórunn Einarsdóttir – framhaldsskólakennari við Kvennaskólann í Reykjavík
- Þór Hinriksson – rafvirki
- Auður Gunnarsdóttir – vörustjóri
- Bergþór Skúlason – tölvunarfræðingur
- Inga Þórunn Halldórsdóttir- fyrrum skólastjóri
- Hafsteinn Hrannar Ásgrímsson – verkefnastjóri á netöryggissviði
- Ingibjörg Auður Guðmundsdóttir – verkefnastjóri
- Jón Ingvar Bragason – framkvæmdastjóri
- Kristín Þórhalla Rokk Þórisdóttir – kvikmyndaframleiðandi