Fíknisjúkir í forgangi

Það hefur verið mikil umræða í samfélaginu síðustu misseri um þann veruleika að æ fleiri foreldrar kjósa að fara til útlanda með börn sín eða ungmenni sem glíma við vímuefnavanda. Við skulum ekkert tipla á tánum í kringum þá staðreynd að langvarandi úrræðaleysi hér á landi er helsta skýringin. En á þessu er líka sú hlið að stundum vilja foreldrar koma börnum sínum af landi brott, helst sem lengst frá neyslunni sem er veruleikinn hér heima. Í skjól í góðri meðferð. Að mínu mati á íslenskt velferðarkerfi að bjóða þessum ungmennum og foreldrum þeirra upp á val. Góð úrræði hér heima en einnig möguleikann á meðferð erlendis, ef þess þarf. Auðvitað kostar þetta fjármuni en við skulum ekki vanmeta hversu verðmætt það getur verið fyrir börn og ungmenni með vímuefnavanda, og samfélagið allt, að fjölbreytt úrræði séu til staðar.

Það er fagnaðarefni að ríkisstjórnin vinnur nú að þessu, eins og kynnt var í vikunni. Fíknigeðdeild fyrir börn er einnig á teikniborðinu og mikið vona ég heitt og innilega að okkur auðnist að hrinda þessu í framkvæmd. Ég er nokkuð viss um að um þetta er þverpólitísk samstaða á Alþingi og sá Íslendingur finnst varla sem ekki vill gera betur í þessum efnum. Þetta hefur verið forgangsmál hjá þessari ríkisstjórn og umtalsverðum fjármunum bætt við enda vandinn uppsafnaður og mikill.

En það er verið að gera fleira. Nýir samningar við Krýsuvík og Hlaðgerðarkot tryggja aukið fjármagn í þann rekstur, auk þess sem lögð er áhersla á að samtökin fái staðfestingu til reksturs heilbrigðisþjónustu. Sem er lykilatriði fyrir faglega starfsemi. Stærstu tíðindin eru þó nýr heildarsamningur Sjúkratrygginga við SÁÁ.

Þar er samið til fjögurra ára og fjárveitingin nemur rúmum tveimur milljörðum króna á ári. Áhrif þessa samnings verða veruleg. SÁÁ fær aukið svigrúm til að forgangsraða meðferð út frá þörf hverju sinni, ný dagdeildarmeðferð er innleidd, fíknimóttaka efld og fleira í þessu mikilvæga starfi. Síðasta ríkisstjórn tók líka mikilvæg skref í rétta átt enda vaxandi skilningur á því í öllu samfélaginu hversu alvarlegur vandi þetta er. Og kostnaðarsamur fyrir ríkið, sveitarfélög, fyrirtæki og fjölskyldur.

Svo eru ekki allir svo lánsamir að geta farið í meðferð. Skaðaminnkandi úrræði skipta því miklu líka. Slíkt starf er í raun ómetanlegt. Aukið fjármagn til að halda úti starfi Frú Ragnheiðar hjálpar fjölda fólks sem er fast í viðjum fíknar.

Vandinn er risastór og honum verður aldrei útrýmt. En allt þetta er til marks um vilja til að gera betur.

Greinin birtist í Morgunblaðinu 20. mars 2026