09 apr Velkomin á Vorþing
Vorið er á næsta leiti með birtu og tækifæri kjósenda í tólf sveitarfélögum, til að kjósa Viðreisn í komandi sveitarstjórnarkosningum.
Viðreisn mun halda vorþing á Fantasíu, sal vinnustofu Kjarvals, laugardaginn 11. apríl kl. 14.00 -18.00. Á vorþinginu mun Viðreisnarfólk koma saman og stilla saman strengi fyrir sveitarstjórnarkosningar.
Skráningar eru hafnar, bæði á staðfund og á fjarfund, til að ræða málefni komandi kosninga og baráttuna sjálfa.
Dagskráin er svohljóðandi:
14.00: Ræða Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, formanns Viðreisnar.
14.30: Viðreisn á höfuðborgarsvæðinu: María Rut Kristinsdóttir alþingismaður stýrir pallborði með oddvitum Viðreisnar í Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og Mosfellsbæ
15.00: Málefnaumræða I og II
16.30: Viðreisn á landsbyggðunum: Sandra Sigurðardóttir alþingismaður stýrir pallborði með oddvitum Viðreisnar í Reykjanesbæ, Akranesi, Ísafirði, Akureyri, Múlaþingi og Árborg.
17.00: Ræða Sigmars Guðmundssonar, ritara Viðreisnar og þingflokksformanns og slit vorþings.
Ræða Þorgerðar og pallborð verða í streymi á facebook.com/vidreisn.