Fyrir þig, fyrir framtíðina, fyrir Mosó

Fyrir fjórum árum mynduðu Viðreisn, Framsóknarflokkur og Samfylking meirihluta í Mosfellsbæ eftir áratuga stjórn Sjálfstæðisflokksins. Oddvitar flokkana, konur sem höfðu brennandi áhuga á því að láta til sín taka, gerðu einmitt það, tóku til. Nýr meirihluti innleiddi ný vinnubrögð með fagmennsku og skilvirkan rekstur að markmiði í þágu íbúa. Þær réðu faglegan bæjarstjóra og gerð var úttekt á stjórnsýslu sveitarfélagsins. Fram komu umbótatillögur sem unnið hefur verið markvisst að því að innleiða svo bæta megi þjónustu við bæjarbúa.

Frá halla í sjálfbærni

Það þurfti líka að taka til hendinni því sveitarfélagið hafði safnað skuldum eftir uppbyggingu í Helgafellshverfi og Covid. Mosfellsbær var rekinn með tæplega milljarðs halla árið 2022 sem er um 1,25 milljarðar á verðlagi 2026. Reksturinn var ósjálfbær þegar meirihlutinn tók við af Sjálfstæðisflokknum og VG og hafði verið það frá árinu 2019. Núverandi meirihluti hefur hins vegar rekið Mosfellsbæ með afgangi. Á sama tíma var staðið við loforð um að lækka álagningarprósentu fasteignagjalda.

Öflugra íþróttalíf

Við lofuðum uppbyggingu á íþróttasvæðinu við Varmá. Þar hefur nú verið byggður nýr gervigrasvöllur og eldri völlur endurnýjaður. Frjálsíþróttavöllurinn er í endurnýjun og ný þjónustubygging á Varmá skipulögð í samvinnu við íþróttafélagið og er bygging hennar nú í útboðsferli. Félagsaðstaða fyrir Aftureldingu í íþróttahúsinu er í byggingu.

Fyrir börnin okkar

Við lofuðum að setja börnin í forgang og innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna – það er nú orðið að veruleika. Við lofuðum því að opna Bólið allt árið og stóðum við það. Við brugðumst kröftuglega við auknum vandamálum sem börnin okkar eiga við að etja og settum í gang verkefni sem hefur verið notað sem fyrirmynd í öðrum sveitarfélögum.

Við lofuðum ekki að byggja tvo skóla en það höfum við gert. Við byggðum nýjan leikskóla í Helgafellshverfi og Kvíslarskóli hefur verið byggður upp nánast frá grunni.

Sjálfbær uppbygging

Við lofuðum uppbyggingu með fjölbreyttum íbúðakostum og sértækum búsetuúrræðum fyrir fatlað fólk og að uppbygging væri sjálfbær. Um 300 lóðum fyrir íbúðir hefur verið úthlutað í formi einbýlis-, rað- og fjölbýlishúsa. Nýr búsetukjarni fyrir fatlað fólk hefur verið opnaður í Helgafellshverfi. Vandað deiliskipulag 1. áfanga á Blikastöðum fyrir 1260 íbúðir hefur verið samþykkt. Við gerðum ítarlega greiningu í samvinnu við KPMG með áætlun um uppbyggingarhraða sem er sjálfbær og raunhæfur.

Gott að eldast í Mosfellsbæ

Við lofuðum að bæta þjónustu við eldra fólk. Við gerðum það og erum þátttakendur í verkefninu „Gott að eldast“ sem hefur gengið frábærlega vel og miðast við að auka samstarf ríkis og sveitarfélags í þjónustu við eldra fólk. Við bættum líka aðstöðu fyrir félagsstarf eldra fólks, sem nú er á Brúarlandi.

Veljum rétt fyrir Mosó

Pólitík snýst um val. Við völdum að taka á erfiðum rekstri, við völdum að setja börnin okkar í forgang og við völdum að byggja upp innviði. Við í Viðreisn höfum sýnt að við erum traustsins verð.. Við erum ekki hætt – við viljum halda áfram að vinna af festu og fagmennsku. Fyrir þig og fyrir Mosó.

Valdimar Birgisson
2. sæti á lista Viðreisnar í Mosfellsbæ