23 jan Framboðsfrestur fyrir prófkjör Viðreisnar í Kópavogi rennur út
Kjörstjórn Viðreisnar í Kópavogi hefur ákveðið að prófkjör um efstu þrjú sæti listans fari fram laugardaginn 7. febrúar 2026. Rétt til atkvæðagreiðslu hafa allir skráðir félagar í Viðreisn í Kópavogi, 16 ára og eldri, sem eiga lögheimili í Kópavogi og hafa skráð sig í Viðreisn a.m.k. 2 dögum fyrir upphaf prófkjörs.
Framboðsfrestur rennur út 23. janúar 2026 kl. 12.00. Hægt er að tilkynna framboð með því að senda póst á netfangið kopavogur@vidreisn.is
Eftirfarandi upplýsingar og gögn skulu fylgja framboðstilkynningu:
– Fullt nafn, kennitala, símanúmer og netfang
– Ef frambjóðandi óskar eftir tilteknu sæti skal það sæti tiltekið
– Kynningartexti (að hámarki 350 orð, til birtingar á heimasíðu Viðreisnar)
– Ljósmynd á rafrænu formi (í góðum gæðum, einnig til birtingar á heimasíðu Viðreisnar)
Að loknum framboðsfresti mun kjörstjórn yfirfara framboð og undirbúa framkvæmd prófkjörsins.
Öll geta boðið sig fram sem eru kjörgeng til sveitarstjórnarkosninga skv. lögum, eiga lögheimili í Kópavogi, munu hafa náð 18 ára aldri á kjördegi þann 16. maí 2026 og hafa skráð sig í Viðreisn a.m.k. 15 dögum fyrir upphaf prófkjörs.
Kjörstjórn hvetur alla félagsmenn sem hafa áhuga á að bjóða sig fram til að senda inn framboð. Félagsfólk mun fá sendar upplýsingar um framkvæmd prófkjörsins þegar nær dregur.
Rétt til atkvæðagreiðslu í prófkjörinu hafa allir skráðir félagar í Viðreisn, 16 ára og eldri, sem eiga lögheimili í Kópavogi og hafa skráð sig í Viðreisn a.m.k. 2 dögum áður en prófkjörið hefst.
Viðreisn í Kópavogi leggur ríka áherslu á gagnsæi, lýðræðislega þátttöku og opið ferli þar sem allir félagsmenn geta tekið virkan þátt í ákvarðanatöku. Reglur Viðreisnar varðandi prófkjör og röðun á lista má finna hér: