Mette vs. Angela

Athyglisverð deila spratt upp á milli Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur og Angelu Merkel, kanslara Þýskalands nú á dögum. Í grein í Politiken hvatti Mette landa sína til að kaupa Lego, fremur en Playmó. Lego væri, jú, danskt fyrirtæki og nauðsynlegt fyrir Dani að styðja við danska framleiðslu eftir Covid-19. Viðspyrna dansks efnahagslífs yrði hraðari ef allir sameinuðust um þetta. Lego væri málið.

Undir þessu gat Angela Merkel ekki setið. Í langri grein í Frankfurter Allgemeine Zeitung, sem birtist samtímis í danskri þýðingu í Jyllandsposten, andmælti Þýskalandskanslarinn þessum málflutningi, og hélt uppi vörnum fyrir þýska merkið Playmobil. Hún sagði enga ástæðu fyrir fólk að velja Lego fremur en Playmó. Playmó væri miklu betra.

“Það mætti halda að frú Frederiksen hafi ekki aðeins farið öfugu megin fram úr í gær, heldur stigið á Lego-kubb í leiðinni”, sagði kanslaraynjan í greininni. “Lego eru að mínu mati verulega ofmetin leikföng. Star Wars rakettan sem maður er 4 tíma að kubba saman á aðfangadag er horfinn í óreiðuna á annan í jólum. Okkar dót helst þó saman. Og krakkar geta leikið sér með það, ekki bara skemmt það og lagað til skiptis. Ég hef hvatt þýska borgara til að sniðganga Lego og velja Playmó í staðinn. Tímarnir krefjast þess.”

“Og hvernig fannst þér Playmó-bíómyndin, Angela?” svaraði Mette á Twitter næsta dag. “Á ekki að hvetja alla til að horfa á hana? Bara 47% á IMDB? Vandræðalegasta sem komið hefur fyrir Þýskaland eftir sameininguna? Haha!”

“Komum ekki nálægt þessari mynd. Fannst Ninjago slöpp líka.” svaraði Angela um hæl.

Ekki urðu þessi samskipti lengri og áttu sér sem betur fer ekki stað til að byrja með. Auðvitað má alveg sýna innlendri framleiðslu móralskan stuðning en til lengdar held ég að við öll vitum að sterkari öfl en tryggð við föðurlandið ráða því hvaða dót fólk velur.

Greinin birist fyrst í Mannlífi 1. maí 202o