Í dag byggir verðmætasköpun á Íslandi að miklu leyti á notkun takmarkaðra auðlinda, mikilli notkun jarðefnaeldsneytis og mjög stóru kolefnisfótspori, sem er með því hæsta í heiminum miðað við hvern íbúa. Fiskveiðar, landbúnaður, ferðaþjónustan og stóriðja búa til risafótspor, sem verður að minnka á næstu árum.

Þess vegna tel ég mikilvægt að framtíðaratvinnuvegir okkar byggi á þeirri einu auðlind sem er óþrjótandi, mengar ekki og skilur ekki eftir sig lítið kolefnisfótspor: hugvitinu. Við sjáum árangurinn allt í kringum okkur. Við erum með fyrirtæki með þúsundir starfsmanna sem eru að framleiða þjónustu sem byggir á hugviti og sjálfbærni og er seld um allan heim.

Hér eru nokkur dæmi um slík íslensk fyrirtæki: Meniga, LS retail, NetApp, CrankWheel, Clara, SidekickHealth, Controlant, Lucinity, Teatime, Creditinfo, CCP, AwareGo, Syndis, dk-hugbúnaður, Mussila, Sabre-Calidris, SagaNatura, Sæbýli, eTactica,Ýmir, Coori, Infomentor, Beedle, Atmonia, Handpoint, Digifresh, Hausmart og hundruð annarra fyrirtækja.

Þessi fyrirtæki eiga það sameiginlegt að nota aðeins eina auðlind, hugvitið sem er óþrjótandi og mengar lítið sem ekkert.

Í Mattheusarguðspjalli segir frá því er Jesús mettaði 5.000 manns hafandi aðeins fimm brauð og tvo fiska í hendi. Raunsætt fólk eins og við sjáum strax að þetta dæmi gengur ekki upp og væri óleyfilegt í COVID-samkomubanni.

En dæmisagan snýst ekki um matvæli. Boðskapurinn er sá að við þurfum sálarfóður ekki síður en fóður fyrir líkamann. Jesús mettaði 5.000 manns með sínum boðskap um frið, hófsemi og velvild. Hann gekk ekki á neinar auðlindir við vinnu sína.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 30. júlí 2020