Ég myndi hlæja ef þetta væri ekki svona sorg­legt

Nýlega birtust fréttir af áhuga Samherja á fiskeldi í Helguvík, verkefni sem mun auka gríðarlega framtíðartekjumöguleika HS Veitna. Rafvæðing hafna og skipaflotans er einnig risaverkefni sem mun auka framtíðartekjumöguleika HS Veitna. Rafvæðing bílaflotans mun kalla á gríðarlega miklar fjárfestingar og auka framtíðartekjumöguleika HS Veitna. Það er einnig ljóst að loki álverið í Straumsvík á næstu árum, eins og margt bendir til, mun tækifæri opnast fyrir HS Veitur til að koma að innviðauppbyggingu nýrra sóknarfæra. Það skiptir máli að eiga sæti við borðið þegar þessar ákvarðanir verða teknar.

Það er gömul saga og ný að hægt er að gera dúndurdíla þegar kreppir að í efnahagslífinu. Sá sem á seðil í kreppu getur gert góð kaup og söðlað til sín eignum á spottprís. Þannig lítur út fyrir að Hafnarfjarðarbær muni selja sína verðmætustu eign á útsöluverði. Sex bæjarfulltrúar meirihlutans halda vart vatni yfir dílnum og kalla þetta, í illa leikinni hógværð sinni, „ásættanlegt verð“. Ásættanlegt verð er ákvarðað út frá forsendum um væntar tekjur til framtíðar. Ráðgjafar meirihlutans hafa sannfært hann um þá framtíðarmynd að HS Veitur, sem vaxið hefur gríðarlega síðustu árin, sé komið á þann stað að vöxtur þess verði mjög hógvær næsta áratuginn eða svo. Upptalningin hér að framan sýnir að næstu ár eru hlaðin tækifærum og vaxtarmöguleikarnir eru gríðarlega miklir.

Hér er verið að hlaða í næstu bólu og þar með næstu kreppu sem kölluð verður innviðabólan og að lokum innviðakreppan. Í henni munu fjárfestar, eins og í bankabólunni, ná tökum á traustum innviðafyrirtækjum á einokunarmarkaði sem skila öruggum tekjum. Til að ná fjárfestingunni til baka með skjótum hætti er búinn til kostnaður, arðgreiðslur auknar og skuldsetning aukin. Að lokum neyðist löggjafinn til að losa um lagaleg höft og gjaldskráin hækkuð, ef ekki fer fyrirtækið á hausinn. Hljómar kunnuglega, ekki satt? Næsta kreppa, eins og margar aðrar verður í boði Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks.

Ef að bæjarfulltrúarnir sex samþykkja þessa brunaútsölu á hlut Hafnarfjarðar í HS Veitum erum við að horfa upp á verstu viðskipti sveitarfélags síðan að sveitastjóri Raufarhafnarhrepps seldi kvótann frá byggðalaginu og keypti hlutabréf í DeCode og Íslandssíma um aldamótin síðustu.

Höfundur er oddviti Viðreisnar í bæjarstjórn Hafnarfjarðar.

Greinin birtist fyrst á Vísi 22. október 2020