Spilling skekur landið

Benedikt Jóhannesson

Öðru hvoru koma upp mál sem vekja svo mikla reiði landsmanna að allt leikur á reiðiskjálfi. Í nokkra daga. Svo dettur allt í dúnalogn aftur.

Flestum veitist auðvelt að sjá smámál meðan þau stærri sem blasa við eru látin óátalin. Enn gildir gamla þversögnin um flísina og bjálkann.

Þegar einhver telur að aðrar reglur gildi um hann en allan almenning þá er það spilling. Hún er þó hálfu verri þegar fest er í lög að ekki gildi sömu reglur um alla. Verst er landlægt misrétti með stuðningi Alþingis og flestra stjórnmálaflokka. Og gott og heiðarlegt fólk viðheldur óréttlætinu með atkvæði sínu.

Nokkur dæmi: Sumir hafa hálfan kosningarétt á við aðra. Sérvalinn aðall hefur einkarétt á gæðum sjávar á spottprís. Almenningur er látinn borga okurverð fyrir landbúnaðarafurðir og kallað stuðningur við bændur.

Vilhjálmur Bjarnason, sem var þingmaður Sjálfstæðisflokks, spurði áleitinna spurninga um spillingu í Morgunblaðsgrein: „Er aðgangi að takmörkuðum gæðum úthlutað eftir duttlungum? Er tekið eðlilegt gjald af takmörkuðum gæðum?“

Gunnar I. Birgisson, annar fyrrverandi þingmaður sama flokks, gaf svarið í sama blaði nú í haust: „Tökum dæmi; útgerð sem aðallega er með uppsjávarkvóta og einnig botnfiskkvóta getur leigt botnfiskkvótann frá sér. Tvö þúsund þorskígildistonn gefa 400 milljónir í leigutekjur á ári, en greiðsla til ríkisins er 20 milljónir, þannig að nettó-ávinningurinn fyrir útgerðina er 380 milljónir króna. Það er því augljóslega hagkvæmara að leigja frá sér kvóta en veiða. Breyta þarf tilhögun kvótakerfisins til að skiptingin verði sanngjarnari fyrir ríkissjóð í slíkum tilfellum. Þetta er því miður í boði míns flokks, Sjálfstæðisflokksins.“

Vilhjálmur hélt áfram: „Sértæk lagasetning fyrir þjóðlega atvinnuvegi og þjóðlega starfsemi leiðir af sér „fyrirgreiðslu“. Fyrirgreiðsla er spilling. Almennar aðgerðir eru heiðarleiki og traust.“

Þriðji Sjálfstæðismaðurinn, Friðjón R. Friðjónsson, skrifaði í sama blað og hinir tveir: „Ef Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að skilgreina sig sem flokk sem er á móti breytingum á efnahagslífinu, sjávarútveginum, landbúnaðarkerfinu, orkumálum, stjórnarskránni og samfélaginu sjálfu – þá mun hann daga uppi og verða að steini, eins og tröll í dagrenningu.“

Sjálfstæðisflokkurinn er alls ekki eini flokkurinn sem er á móti breytingum. Núverandi  vinstri stjórn var stofnuð um óbreytt ástand. Nú lýsa þingmenn hennar því yfir að halda skuli samstarfinu áfram að kosningum loknum. Það fer hrollur um þá sem vilja að ranglætinu linni.

Eftir stendur: Kjósendur stjórnarflokkanna viðhalda stóru spillingunni, jafnvel þótt þeir fái enga hlutdeild í henni sjálfir og hafi á henni skömm.

Greinin birtist  fyrst í Morgunblaðinu 3. mars 2021.