Framboðslisti Viðreisnar í Norðausturkjördæmi

Sigríður Ólafsdóttir, Ingvar Þóroddsson, Draumey Ósk Óskarsdóttir, Eiríkur Björn Björgvinsson, Norðausturkjördæmi

Viðreisn kynnir nú framboðslista sinn í Norðausturkjördæmi fyrir þingkosningarnar sem fram fara þann 25. september næstkomandi.

Eiríkur Björn Björgvinsson, sviðsstjóri og fyrrverandi bæjarstjóri á Akureyri og á Fljótsdalshéraði, skipar fyrsta sæti listans.

Í öðru sæti er Sigríður Ólafsdóttir, mannauðsráðgjafi og PCC markþjálfi. Ingvar Þóroddsson, nemi í rafmagnsverkfræði og hagnýtri stærðfræði við Háskóla Íslands, skipar þriðja sæti listans og Draumey Ósk Ómarsdóttir, íslenskunemi við Háskóla Íslands er í fjórða sæti.

Listann skipa tuttugu kröftugir frambjóðendur á öllum aldri sem hafa fjölbreytta reynslu, þekkingu og bakgrunn. Þau eiga það sameiginlegt að vilja vinna grunnstefnu og málefnum Viðreisnar framgang þar sem frjálslyndi og jafnrétti, réttlátt samfélag, efnahagslegt jafnvægi og alþjóðleg samvinna er í forgrunni.

„Ég hlakka virkilega til baráttunnar fram undan með þessum öfluga hópi. Við brennum öll fyrir kjördæmið, íbúa þess og málefni. Sjálfur hef ég búið og starfað í kjördæminu í þrjátíu ár og þar af verið bæjarstjóri í sextán ár, bæði á Norður- og Austurlandi,“ segir Eiríkur Björn.

Notast er við svokallaða fléttulista á framboðslistum Viðreisnar þar sem hver frambjóðandi má ekki vera af sama kyni og sá sem skipar sætið á undan.

Listi Viðreisnar í Norðausturkjördæmi:

1. Eiríkur Björn Björgvinsson, sviðsstjóri og fyrrv. bæjarstjóri á Akureyri og á Fljótsdalshéraði. Garðabær.
2. Sigríður Ólafsdóttir, mannauðsráðgjafi og PCC markþjálfi. Akureyri.
3. Ingvar Þóroddsson, nemi í rafmagnsverkfræði og hagnýtri stærðfræði við Háskóla Íslands. Akureyri.
4. Draumey Ósk Ómarsdóttir, íslenskunemi við Háskóla Íslands. Reyðarfjörður.
5. Jens Hilmarsson, lögreglumaður. Egilsstaðir.
6. Margrét L. Laxdal, íslenskufræðingur og framhaldsskólakennari. Dalvík.
7. Ingi Þór Ágústsson, hjúkrunarfræðingur og forstöðumaður Austurhlíðar. Akureyri.
8. Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, sölustjóri. Akureyri.
9. Kristján Gunnar Óskarsson, barnasálfræðingur. Húsavík.
10. Lilja Björnsdóttir, leigubílstjóri og sjúkraliðanemi. Egilsstaðir.
11. Erlingur Arason, félagsliði og tónlistarmaður. Akureyri.
12. Dušanka Kotaraš, matráður. Akureyri.
13. Steingrímur Karlsson, kvikmyndagerðarmaður og ferðaþjónustufrumkvöðull. Egilsstaðir.
14. Bryndís Arnardóttir, listgreinakennari og listamaður. Akureyri.
15. Arngrímur Viðar Ásgeirsson, athafnamaður. Múlaþingi.
16. Auðbjörg Björnsdóttir, forstöðumaður Kennslumiðstöðvar HA. Akureyri.
17. Valtýr Þór Hreiðarsson, viðskipta- og rekstrarhagfræðingur. Svalbarðsströnd.
18. Gréta Sóley Arngrímsdóttir, tómstunda- og félagsmálafræðingur. Egilsstaðir.
19. Hólmar E. Svansson, framkvæmdastjóri HA. Akureyri.
20. Guðný Björg Hauksdóttir, mannauðsstjóri. Reyðarfjörður.