Hanna Katrín og Þorbjörg Sigríður leiða lista Viðreisnar í Reykjavík

Viðreisn kynnir nú framboðslista sína í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur fyrir þingkosningarnar sem fram fara þann 25. september næstkomandi.

Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, leiðir lista flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, leiðir listann í Reykjavíkurkjördæmi norður.

Daði Már Kristófersson, prófessor í hagfræði og varaformaður Viðreisnar, skipar 2. sætið á lista flokksins í Reykjavík suður. Jón Steindór Valdimarsson, þingmaður Viðreisnar, er í 2. sæti á lista flokksins í Reykjavík norður.

María Rut Kristinsdóttir, aðstoðarmaður formanns Viðreisnar, er í 3. sæti listans í Reykjavíkurkjördæmi suður og Dagbjartur Gunnar Lúðvíksson, lögfræðingur, er í því fjórða.

Heiða Ingimarsdóttir, framkvæmdastjóri Skautasambands Íslands, situr í 5. sæti, Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands, er í því sjötta og Tinna Gunnlaugsdóttir, fyrrverandi Þjóðleikhússtjóri, skipar 7. sætið.

„Ég er mjög stolt af þessum sterka lista og hlakka til komandi kosningabaráttu með öflugum og fjölbreyttum hópi fólks sem deilir hugsjónum og gildum Viðreisnar. Það er tilhlökkunarefni að bera verk Viðreisnar og þau mál sem við höfum haldið á lofti undir dóm kjósenda í haust. Áherslur Viðreisnar á almannahagsmuni umfram sérhagsmuni eru leiðarljós sem munu reynast íslenskri þjóð best,“ segir Hanna Katrín Friðriksson.

Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir, sálfræðinemi og frístundaleiðbeinandi, skipar 3. sæti listans í Reykjavíkurkjördæmi norður og Guðmundur Ragnarsson, fyrrverandi formaður VM, félags vélstjóra og málmtæknimanna, er í 4. sæti.

Marta Jónsdóttir, lögfræðingur, situr í 5. sæti listans, Geir Sigurður Jónsson, forritari og frumkvöðull, er í 6. sæti og Þórunn Sif Böðvarsdóttir, kennari, er í því sjöunda.

„Verkefnið framundan er stórt. Það snýst um framtíðarsýnina fyrir Ísland, þar sem baráttan fyrir almannahagsmunum verður að hafa betur. Ég hlakka til vinnunnar með þessum sterka og fjölbreytta framboðslista Viðreisnar og veit að saman munum við ná langt,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir.

Notast er við svokallaða fléttulista á framboðslistum Viðreisnar þar sem hver frambjóðandi má ekki vera af sama kyni og sá sem skipar sætið á undan.

Listi Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi suður:

1. Hanna Katrín Friðriksson, formaður þingflokks Viðreisnar
2. Daði Már Kristófersson, prófessor í hagfræði og varaformaður Viðreisnar
3. María Rut Kristinsdóttir, aðstoðarmaður formanns Viðreisnar
4. Dagbjartur Gunnar Lúðvíksson, lögfræðingur
5. Heiða Ingimarsdóttir, framkvæmdastjóri Skautasambands Íslands
6. Gunnar Björnsson, formaður Skáksambands Íslands
7. Tinna Gunnlaugsdóttir, fyrrverandi Þjóðleikhússtjóri
8. Sverrir Kaaber, skrifstofustjóri og formaður öldungaráðs Viðreisnar
9. Eyrún Þórsdóttir, verkefnastjóri
10. Árni Grétar Jóhannsson, leikstjóri og leiðsögumaður
11. Rhea Juarez, í fæðingarorlofi
12. Stefán Andri Gunnarsson, kennari
13. Kristín Hulda Gísladóttir, sálfræðingur á móttökugeðdeild
14. Aron Eydal Sigurðarson, þjónustufulltrúi
15. Sandra Hlín Guðmundsdóttir, náms- og starfsráðgjafi
16. Reynir Hans Reynisson, sérnámslæknir
17. Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir, rannsakandi hjá skattrannsóknarstjóra Skattsins
18. Samúel Torfi Pétursson, verkfræðingur
19. Margrét Ósk Gunnarsdóttir, laganemi
20. Geir Finnsson, varaborgarfulltrúi Viðreisnar og varaforseti LUF
21. Ásdís Rafnar, fyrrverandi hæstaréttarlögmaður
22. Pawel Bartoszek, formaður skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkur

Listi Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi norður:

1. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður
2. Jón Steindór Valdimarsson, þingmaður
3. Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir, sálfræðinemi og frístundaleiðbeinandi
4. Guðmundur Ragnarsson, fyrrverandi formaður VM, félags vélstjóra og málmtæknimanna
5. Marta Jónsdóttir, lögfræðingur
6. Geir Sigurður Jónsson, forritari og frumkvöðull
7. Þórunn Sif Böðvarsdóttir, kennari
8. Borgþór Kjærnested, framkvæmdastjóri
9. Dóra Sif Tynes, lögmaður
10. Einar Karl Friðriksson, efnafræðingur
11. Aðalbjörg Guðmundsdóttir, náms- og starfsráðgjafi
12. Einar Torfi Einarsson Reynis, verkfræðingur
13. Emilía Björt Írisardóttir, stjórnmálafræðinemi
14. Kristján Ingi Svanbergsson, meistaranemi í fjármálum
15. Þuríður Elín Sigurðardóttir, leikkona
16. Halldór Pétursson, byggingarverkfræðingur
17. Svanborg Sigmarsdóttir, framkvæmdastjóri
18. Sveinbjörn Finnsson, sérfræðingur í orkumálum
19. Sigrún Helga Lund, stærðfræðingur
20. Hákon Guðmundsson, markaðsfræðingur
21. Jóhanna Fjóla Ólafsdóttir, kennari og tónlistarkona
22. Þorsteinn Víglundsson, fyrrverandi félagsmálaráðherra