Má bjóða þér af­komu­bætandi að­gerðir?

Nýlega kynnti ríkisstjórnin fjármálaáætlun fyrir árin 2022-2026. Ríkisstjórninni er eðlilega umhugað um að bæta afkomu ríkissjóðs enda kemur hugtakið afkomubætandi alls 114 sinnum fyrir í áætluninni. Ekki veitir af. Af útfærslum þessa afkomubóta er þó minna að frétta. Þetta vekur ugg.

Íhaldssama leiðin

Ekki er deilt um að núverandi ríkisstjórn er íhaldssöm. Hún er sáttmáli um óbreytt ástand. Hvernig er dæmigerð íhaldssöm afkomubót? Þær eru af tvennum toga. Hækka skatta og draga úr útgjöldum. Semsagt 114 loforð um skatta og niðurskurð. Þetta er áhyggjuefni. Misheppnaðar tilraunir til að prenta peninga til að styðja við hallarekstur ríkisins, sem sjá má af erlendri lántöku ríkisins og viljaleysi Seðlabankans til að kaupa ríkisskuldabréf, munu að öllum líkindum leiða til þess að stutt er í að slíkar „afkomubætur“ fari að bitna á almenningi.

Frjálslynda leiðin

Viðreisn hefur lagt til aðra leið. Að vaxa út úr vandanum. Með kröftugum hagvexti má halda skuldahlutföllum niðri og fjármagna fjármagnskostnað með reglubundnum tekjum. Það krefst hins vegar aðgerða. Tryggja þarf ytri stöðugleika. Um það er nokkur samstaða. Seðlabankinn hefur með inngripum sínum á undanförnum mánuðum sýnt að stjórnendur hans eru á sömu skoðun. Gengisstöðugleiki er forgangsmál. Vandamálið er að krónuna skortir trúverðugleika og langan tíma tekur að byggja hann upp. Viðreisn hefur lagt til að Ísland farið að dæmi Danmerkur og geri samninga við Evrópska seðlabankann um gagnkvæmar gengisvarnir – festi gengi krónunnar gagnvart Evru. Danir hafa haft slíkt fyrirkomulag um áratuga skeið með ágætum árangri. Með því fáist nauðsynlegur trúverðugleiki við stefnu Seðlabankans um stöðugt gengi. Árangurinn yrði meiri fyrirsjáanleiki, stöðugra verðlag og kaupmáttur, minni flótti fjármagns úr hagkerfinu og lægri vextir. Allt þetta mundi hjálpa verulega í að stuðla að vexti og hagsæld.

En meira þarf til. Huga þarf að aðgerðum sem stuðla að aukinni framleiðni. Dæmi um slíkt er aukinn stuðningur við rannsóknir og nýsköpun, einföldun regluverks og stjórnsýslu, fjölbreyttari rekstrarform í veitingu opinberrar þjónustu, styrking innviða, bæði rafrænna og í samgöngum og endurskoðun kerfa sem vernda sérhagsmuni á kostnað hagsmuna almennings, t.d. í sjávarútvegi og landbúnaði.

Þitt er valið. Hvora leiðina vilt þú fara?

Höfundur er varaformaður Viðreisnar.

Greinin birtist fyrst á Vísi 7. maí 2021