Tæki­færi til breytinga

Alþingi hefur nú lokið störfum þetta árið og þingmenn eru farnir á heimaslóð til þess að undirbúa kosningarnar í haust. Flestir flokkar hafa komið fram með lista með örfáum undantekningum þó. Mismunandi aðferðum hefur verið beitt við uppstillingu á lista og sitt sýnist hverjum um þær.

Eitt er þó víst að hvert sem fyrirkomulagið er þá er aldrei hægt að gera svo að öllum líki. Þegar eftirspurn eftir sætum á lista er meiri en framboð sitja alltaf einhverjir eftir með sárt ennið sama hvaða aðferðum er beitt. Það hefur komið upp óánægja með fyrirkomulag og niðurstöðu í öllum flokkum þrátt fyrir að einhverjir hreyki sér af því að hafa valið lýðræðislegustu aðferðina sem oft á tíðum hefur í för með sér mikla smölun í flokka og veruleg fjárútlát fyrir frambjóðendur.

Horft til framtíðar

Nú er hins vegar komið að því að línur verði skerptar og kjósendur verði upplýstir um þau áhersluatriði sem flokkarnir standa fyrir. Það verður verkefnið fram að kosningum.

Samfélagið stendur ekki vel eftir Covid-faraldurinn þar sem allar þær aðgerðir sem ríkisstjórnin fór í voru teknar að láni. Þær skuldir verða ekki greiddar með stöðugleikaframlagi „vogunarsjóða“ eins og gerðist eftir bankahrunið.

Þessar skuldir þarf ríkissjóður, og þar af leiðandi almenningur, að greiða.

Því er mikilvægt að við gerum eitthvað annað nú en við höfum hingað til gert. Eitthvað sem felur í breytingar til framtíðar sem leitt geta til aukinnar velferðar almennings og aukins stöðugleika. Miðað við framsetningu þeirrar ríkistjórnar sem nú situr virðist ekkert slíkt í kortunum.

Talað er um þjóðhagsvarúðartæki sem hafa ekkert annað í för með sér en gjaldeyrishöft (til verndar krónunni) í takt við nýja tíma eins og fjármálaráðherra kallar það. Þá er einnig rætt um afkomubætandi aðgerðir sem eru fínni orð yfir skattahækkanir og niðurskurð.

Ef við ætlum okkur að komast út úr endalausri hringrás þenslu og samdráttar sem leiðir alltaf til þess að almenningur þarf að axla byrðarnar, þá þurfum við að feta nýjar slóðir.

Að láta úrtöluraddir, hræðsluáróður og sérhagsmuni ráða för á ekki að vera í boði.

Tækifærið er núna.

Höfundur er oddviti Viðreisnar í Suðurkjördæmi í komandi alþingiskosningum.

Greinin birtist fyrst á vísi 29. júní 2021