Gefum heil­brigðis­þjónustunni tæki­færi

Í íslenskum stjórnmálum er blessunarlega breið samstaða um að heilbrigðisþjónusta skuli vera aðgengileg fólki óháð efnahag þess. Við höfum í gegnum tíðina átt býsna gott heilbrigðiskerfi sem byggist á norrænni hugmyndafræði, þar sem jafnt aðgengi og þjónusta er leiðarstefið. Og svo þarf að vera áfram.

Það sem tekist er um er hvort ríkisrekið kerfi eigi eitt að veita alla heilbrigðisþjónustuna eða hvort fólk eigi líka að hafa aðgang að sjálfstætt starfandi fagaðilum. Þar liggja átakalínurnar, en ekki um það hvort þjónustan eigi að vera greidd af hinu opinbera.

Aukin miðstýring í boði ríkisstjórnarinnar

Allt undanfarið kjörtímabil hafa ríkisstjórnarflokkarnir þrír rekið markvissa stefnu ríkisrekins kerfis og aukinnar miðstýr­ingar. Sjálfstæðum aðilum hefur verið gert erfitt fyrir að veita þjónustu. Jafnvel þótt um sé að ræða þjónustu sem almenningur þarf sárlega á að halda. Þrengt hefur verið að sjálfstætt starfandi sérfræðingum, svo sem sjúkraþjálfurum, talmeinafræðingum o.fl. með þeim afleiðingum að hægar gengur með nýliðun í fagstéttum og biðlistar lengjast. Að þessu leyti er augljós málefnalegur ágreiningur milli stjórnmálaflokka.

Í byrj­un árs voru gerðar breyt­ing­ar á skimun fyr­ir krabba­mein­um í brjóst­um og leg­hálsi. Þetta sam­fé­lags­lega mik­il­væga verk­efni hefur nú al­farið flust yfir til hins op­in­bera með auk­inni miðstýr­ingu. Afleiðingarnar hafa því miður orðið að fjölmargar konur hafa ekki fengið niðurstöður úr krabbameinsskimun mánuðum eftir að skoðun fór fram. Traustið á þjónustunni hefur hrunið og færri konur virðast mæta í skimun en áður, en skimun er lykilforsenda um árangur í baráttunni við krabbamein. Það mun þurfa átak til að efla traust kvenna til þessarar heilbrigðisþjónustu eftir það sem á undan er gengið allt þetta ár.

Við þekkj­um sömuleiðis þá fráleitu fram­kvæmd að bjóða sjúklingum og skatt­greiðend­um upp á að senda sjúklinga í liðskiptaaðgerðir til Svíþjóðar fyr­ir næst­um þris­var sinn­um hærri kostnað en ef fólk gæti notið þessarar heilbrigðisþjónustu hér heima. Markmið stjórnvalda er einfaldlega að forða fólki frá okkar sérfræðingum hér heima. Þessari stefnu um aukna miðstýringu er Viðreisn alls ekki sammála.

Nú, á lokadögum kjörtímabilsins, gerist það svo að heilbrigðisráðherra segist ætla að semja við sjálfstætt starfandi aðila um að létta af þunganum á Landspítala, vegna þeirrar stöðu sem upp er komin vegna Covid smita. Það sé nefnilega í takt við hennar pólitík að leysa málin. Í þessu felast nokkur tíðindi og er ekki í samræmi við þá stefnu sem stjórnin hefur unnið eftir á á kjörtímabilinu. Staðan á spítalanum hefur orðið þess valdandi að bólusett þjóð býr við töluverðar takmarkanir á daglegu lífi til að tryggja að spítalinn ráði við að sinna öllum þeim verkefnum sem honum ber að sinna.

Það er sorglegt til þess að hugsa að sú leið að nýta tækifærin í heilbrigðiskerfinu hefur ekki verið farin, allt þetta kjörtímabil, þrátt fyrir að það þjóni almannahagsmunum að fjölga þeim sem mega veita fólki þjónustu; þrátt fyrir að það myndi létta þungann á þeim sem starfa innan kerfisins; þrátt fyrir að það gæti stytt biðlista; þrátt fyrir að það myndi auðvelda nýliðun og nýsköpun í kerfinu. Og þrátt fyrir að það geti nýtt fjármuni betur en verið hefur.

Forystumenn ríkisstjórnarflokkana virðast staðráðnir í að starfa áfram að loknum kosningum. Þá blasir við að óbreytt stefna verður ríkjandi í heilbrigðisráðuneytinu. Það mun leiða til þess að formið fremur en innihaldið ræður för. Sú stefna þjónar blindri trú á miðstýringu en horfir fram hjá þörfum okkar sem nota þjónustuna.

Hinn kosturinn er að nýta tækifærin í heilbrigðiskerfinu

Íslenskt heilbrigðiskerfi á að vera fyrir notendur og það er jafnréttismál að aðgengi fólks að þeirri þjónustu sé jafnt óháð efnahag. Starfsfólk í heilbrigðiskerfinu er í dag eftirsóttustu starfskraftar heims. Í slíku samkeppnisumhverfi getur það aldrei þjónað hagsmunum almennings að skerða starfsmöguleika fagfólks sem starfar hér heima. Slíkt leysir ekki mönnunarvandann sem forsætisráðherra hefur sagt að sé helsti vandi heilbrigðiskerfisins.

Við eigum að sjá tækifærin í heilbrigðisþjónustu sem þjóna hagsmunum almennings. Það er hlutverk stjórnmálanna að skapa tækifærin og standa vörð um að heilbrigðisþjónusta sé í boði fyrir alla óháð efnahag. Verkefnið framundan er að nýta tækifærin í heilbrigðiskerfinu, það er í þágu notenda sem og starfsfólks. Og það er í þágu almannahagsmuna.

Höfundur er oddviti Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi Norður.

Greinin birtist fyrst á Vísi 18. ágúst 2021