11 ágú Hinn duldi faraldur
Ofbeldi er ekkert annað en faraldur. Ógeðslegur faraldur af mannavöldum sem hefur gríðarlegan eyðileggingarmátt. Ný bylgja skall á með krafti. Enn ein bylgjan. Ólíkt þeim heimsfaraldri sem við höfum verið að kljást við síðastliðið ár er ekkert bóluefni í boði, enginn settur í sóttkví, ekkert þríeyki. En í báðum tilvikum er „óvinurinn“ ósýnilegur. Eða svona hér um bil. Þolendur burðast yfirleitt einir með sína skömm. Ofbeldisfaraldurinn er kannski ekki jafn bersýnilegur þó svo að áhrifin séu alvarleg og raunar oft lífshættuleg.
Langtímaafleiðingar þess að verða fyrir ofbeldi eru þekktar. Að ná fullum bata er því miður ekki alltaf gerlegt. Þau sem verða fyrir ofbeldi lifa með því alla sína ævi. Ég þekki það á eigin skinni.
Daglegir upplýsingafundir
COVID-19 tölfræðin hefur oft verið sláandi. Og samhliða hefur ofbeldi því miður aukist. Það er hinn duldi faraldur. Segjum sem svo að ofbeldisfaraldurinn yrði tæklaður af jafn mikilli festu. Hvernig myndi tölfræðin líta út? Ef öll ofbeldistilvik í samfélaginu okkar yrðu skráð samviskusamlega niður, hvert og eitt og birt opinberlega á miðlægri síðu daglega? Hversu margir eru alvarlega veikir, líkamlega og andlega og fjöldi dauðsfalla skráð samviskusamlega niður. Myndi almenningur þá fyrst vakna og átta sig á alvarleika málsins?
Viðbrögð stjórnvalda væru líklega afdráttarlaus. Ráðherra myndi stíga fram og segja að aðeins samheldni og engin meðvirkni gagnvart vánni geti sigrað meinið. Strangar takmarkanir yrðu settar á þangað til að tölur færu niður. Þríeyki ofbeldisvarna myndi halda daglega upplýsingafundi, koma fram af festu og leggja línur um ofbeldislaust samfélag. Þið þekkið þetta. Ég þori að fullyrða að þar myndi ófögur sjón blasa við. Ég er alls ekki að leggja það til. Ekki misskilja. En maður spyr sig hvort slíkt myndi varpa ljósi á alvarleika faraldursins og fleiri myndu láta sig málið varða.
Staðreyndir málsins
Konur hafa í áratugi barist fyrir tilverurétti sínum og öryggi sínu. Byltingar, bylgjur og baráttur. Konur hafa haldið á þessum bolta, skilað skömminni, öskrað, grátið og öskrað aðeins meira. Aftur og aftur. Hversu margar samfélagsmiðlaherferðir þurfa að verða til þess að eitthvað breytist varanlega? Karlmenn eru hægt og rólega að þora að grípa boltann og það er gott. Það mætti gerast hraðar. Ég vil búa í samfélagi þar sem fólk axlar ábyrgð á gjörðum sínum. En ég vil enn frekar búa í samfélagi þar sem ofbeldi er ekki grasserandi samfélagsmein. Kynjahlutverk og ranghugmyndir um samskipti á milli kynja er svo annað. Öllu máli skiptir að vandinn sé uppi á borði. Fyrir allra augum. Þannig og aðeins þannig getum við ráðið niðurlögum þessa faraldurs. Og fyrir mína parta er það löngu tímabært. Hættum þessari meðvirkni takk og komum í veg fyrir að það þurfi enn eina bylgjuna.
Höfundur skipar 3. sæti á lista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi suður.