Fjöl­breyttir skólar Reykja­víkur þurfa að bjóða fjöl­breytta þjónustu

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir

Nú er tilbúið nýtt úthlutunarlíkan grunnskóla Reykjavíkur, sem heitir Edda sem stýrir því hvernig fjármagni er úthlutað til einstakra skóla. Líkanið er stórt framfaraskref í menntamálum borgarinnar og mikið fagnaðarefni. Bakhópur skólastjóra fylgdist með þróun líkansins, frá því verkefnið hófst í mars 2019 og var það kynnt fyrir öllum skólastjórum grunnskóla Reykjavíkur í ágúst.

Allt of lengi höfum við búið við plástrað líkan, sem mætir ekki þörfum skólanna. Þetta höfum við t.d. séð á rekstraruppgjörum skólanna. Innri endurskoðun benti á þetta sumarið 2019, eftir að vinna okkar við nýtt líkan hófst. Þetta höfum við líka heyrt frá skólastjórnendum og skólaumhverfinu. Á þetta hlustuðum við og fórum í stórt átak til að betrumbæta úthlutunarlíkanið, með aðkomu skólastjórnenda.

Aukum faglegt frelsi skólastjórnenda

Edda snýst um að auka gagnsæi, fyrirsjáanleika og jafnræði á milli skóla og hverfa borgarinnar. Það eru mörg nýmælin í Eddu, sem munu fyrst og fremst efla faglegt frelsi og ábyrgð skólastjórnenda. En einnig taka tillit til mismunandi félagslegra og lýðfræðilegra þátta hvers skóla við úthlutun fjármagns. Með því drögum við úr aðstöðumun á milli skóla. Og börnin í skólunum munu græða.

Fjölbreyttari hópur fagfólks í grunnskólana

Börnin í skólunum munu líka græða á því að skólar fá aukið rými til að ráða fagfólk sem ekki eru kennarar til að styðja við starfið í skólunum. Það geta verið sálfræðingar, þroskaþjálfar, félagsráðgjafar, iðjuþjálfar eða aðrir sérfræðingar. Allt eftir áherslum og þörfum hvers skóla. Eftir því sem fleiri börn þurfa stuðning í skólanum, því fleiri fagaðila verður hægt að ráða.

Þessari breytingu fagna ég mjög, enda er hún í samræmi við stefnu Viðreisnar í menntamálum um að leggja áherslu á þverfaglegt samstarf innan skóla. Við viljum mæta þörfum nemenda með teymisstarfi fagfólks á sviðum velferðar, heilbrigðis og skóla ef því sem þurfa þykir. Þó svo að kennarar séu frábært fagfólk, geta þeir ekki verið fagfólk á öllum sviðum og því telum við rétt að fjölga starfsstéttum innan skólanna.

Skólarnir munu geta brugðist við sínu félagslega umhverfi og þannig þróast í mismunandi áttir, með mismunandi sérfræðinga sem hæfa þeirra umhverfi og óskum skólastjórnenda.

Aukin rekstrarleg ábyrgð skólastjórnenda

Úthlutunarlíkanið tekur mið menntastefnu Reykjavíkurborgar, lögum um grunnskóla og aðalnámskrá, þ.m.t. viðmiðunarstundarskrá og raunkostnaði við rekstur skólana á árunum 2017-2019. Niðurstaðan er líkan með vel skilgreindum og skýrum forsendum fyrir alla skóla, sem á að ná fram bæði rekstrarlegri og faglegri bestun.

Líkaninu fylgir líka aukin ábyrgð skólastjórnenda um að starf skólans sé innan fjárheimilda hverju sinni. Til þess mun skólastjóri fá stuðning frá rekstrarstjóra og ef þörf krefur fjármálaráðgjöfum og fjármálastjóra skóla- og frístundasviðs. Krafa verður gerð um frávikaskýrslur og tímasettar úrbótaáætlanir, ef rekstur er umfram fjárheimildir. Ef um verulegan rekstrarvanda er að ræða verður um aukinn stuðning að ræða.

Næsta skref verður svo síðar á árinu í borgarráði, þegar við ræðum fjármagnið sem fer í þetta líkan og hversu mikið við þurfum að bæta við í rekstur skóla. En líkanið sjálft, sem gæta þarf að verði ekki að sama flækjustigi og það úthlutunarlíkanið sem við erum að hverfa frá, eru mikilvæg tímamót í allri fjármálalegri umgjörð grunnskóla Reykjavíkur.

Höfundur er formaður borgarráðs og oddviti Viðreisnar.

Greinin birtist fyrst á Vísi 22. september 2021