Færri stefnur og fleiri að­gerðir í Reykja­vík

Byrjum á titli þessarar greinar, stefnur eru góðar, þetta ætti ég að vita eftir að hafa starfað um árabil við stjórnun og stefnumótun hjá fjölda fyrirtækja og stofnana. Stefnur draga fram sýn stjórnenda og hagsmunaaðila og geta þannig verið fyrsta skref í átt að nýjum markmiðum. En ef stefnum fylgir ekki tímarammi, forgangsröðun, aðgerðarlisti og skilgreind ábyrgð gera þær ekki gagn. Ég vil færri stefnur og vandaðri forgangsröðun og aðgerðir fyrir Reykjavíkurborg í þágu borgarbúa og atvinnulífs.

Sköpum traust milli borgar og atvinnulífs

Ég á samleið með stefnu og sterkum gildum Viðreisnar auk þess sem mér finnst markmið flokksins um jafnrétti, réttlátara samfélag, kröftugt efnahagslíf og ábyrga fjármálastjórnun í takt við það sem ég hef talað fyrir.

Stefna Viðreisnar á brýnt erindi við borgina og ég tel mig réttu manneskjuna til að leiða þá stefnu og koma til framkvæmda. Það er til dæmis brýnt að efla traust á milli atvinnulífs og borgar og að bregðast við ákalli atvinnulífsins um skilvirkari þjónustu. Mikilvægi þessa kemur glögglega fram í drögum að Atvinnu- og nýsköpunarstefnu borgarinnar 2022-2030. Þar segir meðal annars að ein helsta áskorunin sé tortryggni og vantraust atvinnulífsins gagnvart borginni auk þess sem kvartað er undan flókinni og ógagnsærri þjónustu borgarinnar við atvinnulífið.

Velferð og atvinnulífi í þágu borgarinnar

Velferð og atvinnulíf borgarinnar eru ekki andstæðir pólar heldur mikilvægir þættir góðs og heilbrigðs samfélags. Við þurfum nýja nálgun og umgjörð þannig að þessir þættir styðji hvor við annan. Ég hef reynslu af þannig verkefnum. Traust og gott atvinnulíf skapar verðmæti og einfaldar lífið. Öflugt atvinnulíf og velferð tengjast órjúfanlegum böndum. Borgin á að einbeita sér með markvissari og gegnsærri hætti að velferðarmálum. Ég vil fleiri aðgerðir borgarinnar í þágu velferðar og atvinnulífs.

Heilbrigða umgjörð um fyrirtæki

Við þurfum að skapa heilbrigða og umgjörð um starfsemi fyrirtækja í borginni og einfalda ferli leyfa og umsókna. Viðreisn hefur óskað eftir því á Alþingi með þingsályktunartillögu um að farið verði í mat á því hvaða atvinnurekstur opinberra stofnana og fyrirtækja í eigu ríkisins sem telst vera í samkeppni við einkaaðila sé nauðsynlegur til að þjóna sérstökum hagsmunum samfélagsins. Tillagan gerir auk þess ráð fyrir því að ráðherra verði falið að leggja fram tímasetta aðgerðaáætlun um hvernig skuli dregið úr þeim samkeppnisrekstri ríkisins sem ekki telst nauðsynlegur með tilliti til almannahagsmuna. Þetta þurfa sveitarfélög líka að gera.

Góð atvinnustefna sveitarfélaga miðar að því að örva og efla sjálfstæð fyrirtæki, að verk séu unnin á gegnsæjan og hagkvæman hátt fyrir hið opinbera í gegnum vel skilgreind útboð. Ekki með því að stjórnsýslan þenjist út og dragi þar með þrótt út atvinnulífinu með því að sækja þaðan hæft starfsfólk. Góð atvinnustefna stuðlar þannig að hagkvæmni og skilvirkni fyrir hið opinbera og fyrir einkaaðila.

Það þarf nýja nálgun í að leiða og stjórna borginni. Ég vil bretta upp ermar og vinna að því að koma hlutum í verk fyrir heimili og fyrirtæki í borginni. Ég óska eftir stuðningi þínum í fyrsta sæti lista Viðreisnar í prófkjöri flokksins sem fer fram 4.-5. mars.

Greinin birtist fyrst á Vísi 23. febrúar 2022