04 feb Má bjóða þér að þjást?
Það var áhugavert að hlusta á nýjan forstjóra Landspítalans í viðtali á RÚV á dögunum. Hann lagði þar áherslu á að fólkið í landinu vilji fyrst og fremst öfluga heilbrigðisþjónustu. Sömuleiðis sagði hann að skilgreina þurfi hlutverk spítalans og undirstrikaði að það sé ekki sjálfgefið að spítalinn sinni öllum þeim verkefnum sem hann sinnir núna. Ég get fyllilega tekið undir þessi sjónarmið sem forstjórinn setti þarna fram. Enda höfum við í Viðreisn ítrekað lagt áherslu að þjónustan í heilbrigðiskerfinu sé í fyrirrúmi og hún tryggð. Með öflugu hátæknisjúkrahúsi, heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni og neti sjálfstæðra heilbrigðisaðila. Það er því miður ekki staðan í dag. Biðlistar og biðlistar til að komast á biðlista er það sem bíður margra. Því verður áhugavert að sjá hvaða stefnu ríkisstjórnin tekur núna. Í átt að betri þjónustu – eða frekari ríkisvæðingu. Það er stóra spurningin.
En hver er stefnan?
Á síðasta kjörtímabili kappkostaði ríkisstjórnin við að ríkisvæða hvern einasta anga heilbrigðiskerfisins. Neitaði að gera samninga við sjálfstætt starfandi sérfræðilækna, sjúkraþjálfara, sálfræðinga, talmeinafræðinga. Neitaði að gera samninga við Sjúkratryggingar þannig að hægt væri að tryggja þjónustu við fólk sem þarf á liðskiptaaðgerðum að halda. Ríkisstjórninni fannst einhverra hluta vegna forsvaranlegt að greiða niður aðgerðir á einkaklíník í útlöndum fyrir þrefalt hærra verð en hér heima. Svo ég tali nú ekki um það dómadagsklúður sem flutningur ráðherra á leghálsskimunum frá Krabbameinsfélaginu. „Aðför að heilsu kvenna“ var það kallað. Og það réttilega. Hneykslanleg aðför. Allt voru þetta pólitískar ákvarðanir ríkisstjórnarflokkanna. Ákvarðanir um að verða besta land í heimi í biðlistum í heilbrigðiskerfinu. Og nú reynir á nýjan heilbrigðisráðherra að koma með sína stefnu.
Argasta della
Í mínum huga er þetta ekkert annað en argasta della. Viðreisn hefur ítrekað lagt fram frumvarp sem leiðréttir þessa skekkju varðandi liðskiptaðgerðirnar. Tillögur okkar um að veita Sjúkratryggingum Íslands aukna heimild til að semja við sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólk voru allar felldar.
Við mótmæltum einnig ríkisvæðingu ríkisstjórnarinnar harðlega á síðasta kjörtímabili. Við viljum að þjónustan sé sett í forgrunn. Ekki rekstrarformið. Við þurfum sterkan og öflugan Landspítala. En við þurfum einnig að tryggja jafnt aðgengi og gera samninga við sjálfstætt starfandi heilbrigðisþjónustu. Niðurgreiða sálfræðiþjónustu, liðskiptaaðgerðir og tryggja jafnt aðgengi. Lina þjáningar. Auka lífsgæði. Þannig að það fólk sem hér kýs að búa fái heilbrigðisþjónustu við hæfi og þurfi ekki að þjást á biðlistum. Annað kjörtímabil af því sama er því ekki í boði.