28 mar Listi Viðreisnar í Mosfellsbæ
Framboðslisti Viðreisnar í Mosfellsbæ fyrir sveitarstjórnarkosningar sem fara fram 14. maí nk. var samþykktur á fjölmennum félagsfundi í gær. Við bjóðum fram öflugan og fjölbreyttan lista fólks sem mun vinna af krafti til þess að bæta bæinn okkar. Frjálslyndi og jafnrétti er leiðarstef okkar og með þessi gildi að leiðarljósi viljum við tryggja að Mosfellsbær verði framúrskarandi samfélag þar sem lífsgæði og jöfn tækifæri íbúa eru í fyrirrúmi. Framboðslistinn samanstendur af 11 konum, 10 körlum og 1 kvár. Meðalaldur listans er 43,9 ár, elsti frambjóðandinn er 69 ára en yngsti 19 ára, og búseta frambjóðenda er dreifð um öll hverfi bæjarins.
Oddviti listans er Lovísa Jónsdóttir, hugverkalögfræðingur og varabæjarfulltrúi. Í öðru sæti er Valdimar Birgisson, auglýsingastjóri og bæjarfulltrúi. Í þriðja sæti er Elín Anna Gísladóttir, verkfræðingur og varaþingmaður Viðreisnar.
„Það er margt sem þarf að huga að en það er skýr sýn okkar að Mosfellsbær á að vera leiðandi í umhverfismálum og þjónustu við fatlað fólk, börn og eldri borgara þannig að allir fái notið sín í bænum. Skipulagsmál hafa verið og eru stór áskorun í ört vaxandi bæjarfélagi. Við leggjum áherslum á ábyrga fjármálastjórn og uppbyggingu kröftugs atvinnulífs. Eins viljum við einfalda íbúum lífið í bænum með því bæta stafræna þjónustu bæjarins og tryggja gagnsæja stjórnsýslu. Við hlökkum til að takast á við þessi mikilvægu verkefni og leggja okkar af mörkum til að gera bæinn betri,“ segir Lovísa Jónsdóttir, oddviti Viðreisnar í Mosfellsbæ.
Framboðslisti Viðreisnar í Mosfellsbæ 2022
- Lovísa Jónsdóttir, hugverkalögfræðingur og varabæjarfulltrúi
- Valdimar Birgisson, auglýsingastjóri og bæjarfulltrúi
- Elín Anna Gísladóttir, verkfræðingur og varaþingmaður
- Ölvir Karlsson, lögfræðingur
- Olga Kristrún Ingólfsdóttir, viðskiptafræðingur og verkefnastjóri
- Atlas Hendrik Ósk Dagbjarts, framhaldsskólanemi
- Ágústa Fanney Snorradóttir, framleiðandi og kvikmyndagerðarkona
- Rúnar Már Jónatansson, rekstrarstjóri
- Guðrún Þórarinsdóttir, viðurkenndur bókari
- Þórarinn Helgason, nemi
- Gréta Jóhanna Ingólfsdóttir, skrifstofufulltrúi
- Jón Örn Jónsson, verkefnastjóri
- Emilía Mlynska, mannfræðingur og náms- og starfsráðgjafi
- Kjartan Jóhannes Hauksson, sölu- og þjónustufulltrúi
- Hrafnhildur Jónsdóttir, öryrki
- Reynir Matthíasson, framkvæmdastjóri
- Ólöf Guðmundsdóttir, kennari
- Magnús Sverrir Ingibergsson, húsasmíðameistari
- Ásta Lilja Maack Sigurðardóttir, leiðbeinandi á leikskóla
- Sigurberg Guðbrandsson, rafvirki
- Hildur Björg Bæringsdóttir, verkefnastjóri
- Bolli Valgarðsson, ráðgjafi