01 mar Sara Dögg Svanhildardóttir leiðir lista Viðreisnar í Garðabæ
Tillaga uppstillinganefndar um lista Viðreisnar í Garðabæ fyrir sveitarstjórnarkosningarnar þann 14. maí nk. var samþykkt á fjölmennum félagsfundi í gærkvöldi. Þetta er í fyrsta sinn sem Viðreisn í Garðabæ býður fram til sveitarstjórnarkosninga og mikill áhugi var að starfa með listanum. Niðurstaðan er sterkur listi öflugra einstaklinga sem mun starfa að heilum hug fyrir íbúa Garðabæjar.
„Það birtir svo sannarlega til í Garðabænum. Viðreisn sækir fram með gríðarlega öflugt og framsækið fólk sem vill tryggja sanngjarnara samfélag í Garðabæ. Með frjálslyndið að leiðarljósi mun Viðreisn í Garðabæ leggja sterka áherslu á fjölskylduvænt, umhverfisvænt og fjölbreytt samfélag þar sem Garðbæingar, á öllum aldri fá notið sín. Í öllum hverfum sveitarfélagsins eigum við að tryggja góða leik- og grunnskóla, gott aðgengi að íþrótta- og tómstundastarf og almenningssamgöngur. Við munum líka leggja áherslu á 15 mínútna hverfaskipulag, þar sem mannlíf með atvinnutengdri þjónustu blómstrar,” segir Sara Dögg, nýr oddviti Viðreisnar í Garðabæ.
Listi Viðreisnar í Garðabæ:
- Sara Dögg Svanhildardóttir, bæjarfulltrúi
- Guðlaugur Kristmundsson, markaðsstjóri
- Rakel Steinberg Sölvadóttir, frumkvöðull
- Árni Björn Kristjánsson, aðstoðarmaður fasteignasala
- Ásta Sigríður Guðjónsdóttir, verkefnastjóri stafrænna miðla
- Arnar Hólm Einarsson, fræðslustjóri rafíþróttasambands Íslands
- Ásta Leonhards, viðskiptafræðingur
- Benedikt D Valdez Stefánsson, hugvirki
- Tinna Borg Arnfinnsdóttir, viðskiptafræðingur
- Ólafur G. Skúlason, skurðhjúkrunarfræðingur
- Tamar Lipka Þormarsdóttir, lögfræðingur
- Svanur Þorvaldsson, ráðgjafi
- Heiðrún Sigurðardóttir, viðskiptafræðingur
- Gunnar Júlíusson, grafískur hönnuður
- Dagný Fjóla Ómarsdóttir, ferðamála- og alþjóðaviðskiptafræðingur
- Jón Bjarni Steinsson, veitingamaður
- Dagný Sigurbjörg Jónsdóttir, lyfjafræðingur
- Eyþór Eðvarðsson, stjórnendaráðgjafi
- Margrét Rósa Kristjánsdóttir, lyfjafræðingur
- Ólafur Örn Ólafsson, veitingamaður
- Jenný Guðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri
- Thomas Möller, verkfræðingur.