Snemmtækur stuðningur í þágu vel­ferðar barna og sam­fé­lags­legrar hag­sældar

Mikilvægasti tíminn þegar kemur að þroska og velferð barna er tíminn frá getnaði til tveggja ára aldurs. Með góðum grunni á þessum mikilvæga tíma getum við aukið líkur á farsæld barna inn í framtíðina sem skilar sér einnig í samfélagslegri hagsæld.

Foreldrar bera vissulega megin ábyrgðina þegar kemur að uppeldi barna sinna en samkvæmt lögum um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barns er uppeldi ekki einkaverkefni foreldra heldur einnig ábyrgð samfélagsins. Eins og sagt er – það þarf heilt þorp til að ala upp barn. Það er ekki bara mikilvægt fyrir velferð einstaklinganna sjálfra að halda vel á spöðunum í þessu samstarfsverkefni heldur líka fyrir samfélagið í heild.

Tökum stærri skref í þágu barnafjölskyldna

Aðkoma sveitarfélaga er því gríðarlega mikilvæg og því mikilvægt að sterkir innviðir séu til staðar til að styðja við foreldra í uppeldishlutverkinu. Við í Viðreisn í Garðabæ viljum sjá sveitarfélagið koma betur að málefnum barnafjölskyldna og byggja upp styrkari stoðir. Gera betur í þágu einstaklinganna og gera betur í þágu samfélagslegrar hagsældar. Við viljum að snemmtækur stuðningur sé í boði fyrir foreldra barna og unglinga samhliða snemmtækum inngripum og verði hluti af farsældarþjónustu Garðabæjar. Við viljum taka stærri skref og bæta við þá farsældarþjónustu sem öllum sveitarfélögum ber lagaleg skylda að innleiða samkvæmt nýjum lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna.

Snemmtækur stuðningur

Foreldrafræðsla er eitt dæmi um snemmtækan stuðning og hafa rannsóknir sýnt að foreldrar sem fá stuðning í því formi eru almennt öruggari og vissari um eigin getu og hæfileika í uppeldishlutverkinu. Þau jákvæðu áhrif skila sér síðan í uppeldið og þaðan til barnanna í formi aukins málskilnings, betri samskiptahæfni, aukins félagsþroska og sjálfsöryggi.

Snemm­tæk­ur stuðning­ur við fjöl­skyld­ur ungra barna kostar mun minna en sam­fé­lags­leg­ur kostnað ef ekk­ert er gert — niðurstaðan er sparnaður fyr­ir sam­fé­lagið. Fyrir hverja krónu sem fjárfest er í þessum málaflokk má spara 30 krónur samkvæmt skýrslu London School of Economics. Þannig höfum við sem samfélag verulegra hagsmuna að gæta þegar kemur að uppvexti og velferð barna okkar.

Hefjumst handa strax

Það er ekkert launungarmál að íbúum Garðabæjar fjölga hratt og þar með talið börnum á leik- og grunnskólaaldri. Samkvæmt úttekt sem VSÓ Ráðgjöf gerði fyrir Garðabæ um stöðu og þörf í leik- og grunnskólamálum til ársins 2040 er gert ráð fyrir 5.010 börnum á leik- og grunnskólaaldri árið 2040. Þetta er fjölgun um 1.129 börn frá árinu 2020 og því enn mikilvægara að hafa hraðar hendur til að vera tilbúin að mæta betur þörfum allra barna og foreldrum/forráðafólki þeirra.

Greinin birtist fyrst á Vísi 31. mars 2022