24 apr Sjálfsvantraust
Framhald á sölu hlut ríkisins í fjármálakerfinu var eina sérstaka stefnumál Sjálfstæðisflokksins sem samstarfsflokkarnir féllust á að kæmi til framkvæmda í endurnýjuðu ríkisstjórnarsamstarfi þeirra. Allt annað í stefnu ríkisstjórnarinnar kom annað hvort beint frá VG eða frá öllum þeirra sameiginlega.
Það var því mikið í húfi fyrir Sjálfstæðisflokkinn og stjórnina að vel tækist til. Þetta var ekki bara eina sérstaka mál flokksins heldur eitt stærsta mál ríkisstjórnarinnar. Ég þarf ekki að lýsa því mikið nánar hvernig þetta gekk til því fátt annað kemst að í fréttum þessa dagana. Eðlilega. Jafnvel stöku stjórnarþingmenn ganga nú fram fyrir skjöldu og taka undir þá gagnrýni sem bergmálar um allt samfélagið.
Í kjölfarið hefur átt sér stað veruleg stefnubreyting hjá ríkisstjórninni. Viðbrögð hennar eða formanna stjórnarflokkanna eru meðal annars þau að leggja niður Bankasýslu ríkisins, vegna ákvarðana sem ráðherrar á endanum tóku sjálfir. Þau viðbrögð má varla skilja öðruvísi en tilraun til hvítþvottar.
Hin stóra pólitíska ákvörðun er hins vegar sú að hætta við frekari sölu á eignarhlut ríkisins í bankakerfinu. Þar með verður einnig vikið frá gildandi eigendastefnu ríkisstjórnarinnar.
En þetta þýðir líka á mannamáli að eina sérstaka stefnumál Sjálfstæðisflokksins í stjórnarsamstarfinu hefur verið tekið af lífi. Því er slaufað.
Þetta er í fyrsta skipti sem ríkisstjórn lýsir í raun yfir vantrausti á sjálfa sig. Ríkisstjórnin sjálf segir að hún hafi haldið svo illa á einu stærsta máli kjörtímabilsins að ekki sé verjandi að öllu óbreyttu að halda áfram með það.
Sjálfsvantraust er ný staða í íslenskri pólitík. Og þetta er staða sem er ekki góð.
Viðreisn hefur frá upphafi stutt þá meginstefnu að selja hluti ríkisins í fjármálakerfinu en halda eftir um 40% hlut í Landsbankanum. Forsenda okkar hefur ávallt verið sú að þetta yrði gert á grundvelli almannahagsmuna.
Nú er ljóst að sú leið sem ríkisstjórnin ákvað að fara fullnægði ekki þeim kröfum. Ríkisstjórnin þarf að gera hreint fyrir sínum dyrum því á endanum ber hún á ábyrgð á öllum sínum verkum. Hvort sem henni líkar betur eða verr.
Hagsmunir almennings og fyrirtækja, sem eiga viðskipti við bankana kalla á aukið traust og meiri samkeppni á fjármálamarkaði. Á það höfum við ávallt lagt höfuð áherslu. Samkeppni virðist hins vegar bannorð í hugum stjórnarflokkanna. Hvort sem litið er til aðkomu erlendra fjárfesta í fjármálakerfinu eða fjölda annarra samkeppnismála sem ríkisstjórnin hefur tekið afstöðu gegn. Það bitnar á endanum á hag almennings og lífsgæðum fólks.
Fyrir þá sem vilja umbætur á grundvelli almannahagsmuna er vont að Sjálfstæðisflokkurinn skuli hafa strandsiglt þessu máli. Afleiðingarnar af því eru bæði raunverulegar og alvarlegar. Það verður ekki leyst með því einu að leggja Bankasýsluna niður. Það þarf annað og meira til svo hægt verði að ýta þessu mikilvæga máli aftur á flot í fullu trausti og í sátt við almenning.