Kosið um traust

Kæru Reykvíkingar. Í dag göngum til kosninga og kjósum um framtíð borgarinnar. Það verður kosið um stefnu. Og það er kosið um traust.

Viðreisn er stolt af vinnu sinni á kjörtímabilinu enda höfum við uppfyllt yfir 90% af okkar kosningaloforðum, sem er ekki eitthvað sem margir stjórnmálaflokkar geta státað af. Það er því mikilvægt fyrir Reykjavík að Viðreisn verði sterk rödd í borgarstjórn til að geta uppfyllt þau loforð sem við höfum nú boðið fram, loforð um betri borg, frelsi til skóla, betri rekstur og skemmtilegri hverfi.

Við erum flokkur sem leggur upp úr því að vandað sé til verka og að almannahagsmunir séu settir í fyrsta sæti. Við erum líka flokkur sem vinnur að raunhæfum lausnum að vandamálum til að tryggja góða þjónustu á forsendum borgarbúa, þeirra sem nota þjónustuna. Það skiptir okkur meira máli að vinna málin vel en að setja fram glansmyndir á samfélagsmiðlum.

Við stöndum við kosningaloforðin

Við lofuðum því að lækka fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði á síðasta kjörtímabili og við stóðum við það. Nú lofum við að ganga enn lengra og lækka skattana en meira. Við í Viðreisn viljum tryggja að borgarbúar hafi raunverulegt val um hvernig við ferðumst um borgina. Þess vegna styðjum við Sundabraut, hágæða Borgarlínu og vel tengt hjólastíganet.

Við erum með skýra sýn til framtíðar. Sýn um hvernig Reykjavík verður enn betri borg, með því að halda áfram met uppbyggingu undandarinnar ára. Húsnæðismál eru ekki eins og Neskaffi. Það er ekki hægt að leysa lóðaskort með skyndilausnum. En það sem mikilvægt að gera, strax er að innviðaráðherra einfaldi reglulgerðarfarganið í byggingmálum, líkt og Reykjavíkurborg, OECD og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafa lagt til. Það mun flýta allri uppbyggingu töluvert.

Við segjum líka að það sé lykilatriði að fá atvinnu inn í hverfin. Það er mikilvægt til að fólk geti unnið í hverfinu sínu. Það er mikilvægt vegna þess að atvinna í hverfum eykur aðra þjónustu og það gerir hverfin enn skemmtilegri.

Viðreisn er rödd frjálslyndis, jafnrétti og ábyrgðar í fjármálum

Viðreisn er mikilvæg rödd í borgarstjórn Reykjavík, sem talar fyrir frjálslyndi, jafnrétti og ábyrgð í fjármálum. Eftir því höfum við starfað og munum gera það áfram.

Við höfum skýra sýn um hvernig borg við viljum sjá. Við viljum sjá borg sem heldur betur utan um börnin sín og fólkið í borginni. Borg sem heldur vel utan um rekstur og þjónustu. Borg með lifandi og skemmtilegum hverfum. Við biðjum um þinn stuðning til að halda áfram að byggja upp mennska og skemmtilega borg. Á móti geta Reykvíkingar treyst á að við í Viðreisn stöndum við okkar.

Gleðilegan kjördag.

Greinin birtist fyrst á Vísi 14. maí 2022