Veruleikatenging

309 kjarasamningar renna út næstu mánuði. Meðal þeirra eru samningar allra aðildarfélaga Kennarasambands Íslands, auk kjarasamnings BSRB við sveitarfélögin og fjöldi samninga ýmissa félaga háskólamenntaðra við ríki og sveitarfélög.

Lífskjarasamningurinn sem nær til yfir 100.000 launþega í stærstu stéttarfélögum landsins rennur út fyrir áramót. Framundan eru erfiðar kjaraviðræður með stéttarfélög klofin í herðar niður vegna innbyrðis átaka.

Hvað skiptir máli fyrir launafólk?

Íslensk heimili eru spákaupmenn á gjaldeyrismarkaði og er nauðugur sá kostur að veðja sífellt á að krónan styrkist. Alla jafna taka spákaupmenn á sig áhættu í von um gróða en mun líklegra er að þeir tapi. Íslensk heimili eru tilneydd í áhættusöm og sveiflukennd viðskipti sem þau tapa alltaf á – því okkar örmynt hefur aldrei styrkst til lengri tíma. Það þarf ekki doktorspróf í sögu til að sannreyna þá fullyrðingu. En fyrir vikið er hið daglega líf fólks sífellt í spennitreyju.

Ef tekin væri upp erlend mynt þá myndu þessar sveiflur ekki skipta venjulegt fólk jafnmiklu máli. Verð á neysluvörum yrði stöðugra. Laun héldust í hendur við neysluverð. Verðtryggingin hyrfi. Átök á vinnumarkaði yrðu minni.

Af hverju eiga íslensk heimili að taka á sig duttlunga og sveiflur íslensku krónunnar? Þar sem birtingarmyndin er miklu hærra vaxtastig en gengur og gerist í nágrannalöndum okkar, sem einnig glíma við sambærilega verðbólgu. Fyrir venjulegt fólk sem treysti á loforðaflaum stjórnarflokkanna um Ísland sem lágvaxtaland hafa húsnæðislán fólksins á breytilegum vöxtum hækkað um tugi þúsunda á mánuði. Slík er nú kjarabótin með íslensku krónunni. Því til viðbótar er ríkissjóður rekinn með tæplega tvöhundruð milljarða halla sem verður seint metið skynsamt framlag til stöðugleika og lágrar verðbólgu.

Draumsýn eða tálsýn?

Okkar séríslenska króna skapar hættu fyrir heimilin, fyrirtækin og velferðina. Stefna Viðreisnar er að lífskjör verði hér samkeppnishæf og að stöðugleiki fáist fyrir heimilin og atvinnulíf. Að byggja upp fleiri og fjölbreyttari störf til lengri tíma. Að kveðja heimatilbúið og sveiflukennt hagkerfi og fá þess í stað nokkra vissu um hvað morgundagurinn ber í skauti sér.

Þessi draumsýn er hins vegar tálsýn nema við tengjumst eða tökum upp evru. Það er veruleikinn.

Greinin birtist fyrst á Vísi 29. ágúst 2022