11 nóv Biðin eftir leigubíl
Við viljum meira frelsi á leigubílamarkaði. Það sýnir nýleg könnun Maskínu. Hún sýnir líka að stórnotendur þjónustunnar eru þeir sem helst vilja sjá breytingar.
Það er merkilegt að þegar að notendur þjónustunnar vilja breytingar og þegar íslenska ríkið hefur fengið áminningu frá ESA um að íslenska löggjöfin um leigubílamarkaðinni brjóti í bága við EES samninginn, að enn séu stjórnvöld hér ekki tilbúin til þess að hlusta.
Hvar er þetta fólk að fela sig sem hélt þriggja daga landsfund undir kjörorðinu „Frelsi“? Það virðist að minnsta kosti ekki kveikja á því að það sé í ríkisstjórn og geti hér breytt í átt að frelsi.
Ekki bara frelsismál heldur öryggismál
Staðreyndin er sú að þessi mál snúast ekki lengur bara um frelsi. Þetta er orðið spurning um öryggi. Of oft er enga leigubíla að fá. Drukkið fólk gefst upp á biðinni og keyrir jafnvel heim á bílnum sínum sem stóð til að skilja eftir. Ég heyri sérstaklega frá konum að þær upplifi sig óöruggari því þær geta ekki treyst á að finna leigubíl t.d. úr miðbænum um helgar. Nú er veturinn fram undan og biðin eftir leigubíl verður kaldari og kaldari. Um leið hugsa ég að þolinmæði fólks minnki.
Oft finnst manni að einu rök þeirra sem standa í vegi fyrir frelsi á leigubílamarkaði séu að það sé svo hættulegt að hver sem er geti sinnt þessari þjónustu. En staðreyndin er að fólk er núna að leita inn á svartan markað, eins og félagar upp á tugþúsundir í skutlarahópum á samfélagsmiðlum sýnir. Þangað fer fólk því leigubílaþjónustan sem er í boði núna mætir ekki eftirspurninni. Þar getur hver sem er tekið að sér að skutla fólki.
Alvöru val
Ef við hleypum svokölluðum farveitum inn á markaðinn þá væru ferðir skráðar, þú hefðir val um mismundi bíla, tegund bílstjóra og gætir kannað hversu góður bílstjórinn sem þú pantar er. Þú vissir líka fyrir fram hvert verðið væri fyrir ferðina. Hvað er svona slæmt við það?
Farveiturnar þurfa ekki að útiloka það að hér geti núverandi fyrirtæki starfrækt sína þjónustu áfram. Samkeppni á alltaf að vera af hinu góða. Viðskiptavinir fá einfaldlega valfrelsi og munu velja þá þjónustu sem þeim hentar best hverju sinni.
Viðreisn vill frelsi á leigubílamarkaði
Frelsi á leigubílamarkaði gæti líka hjálpað til við að leiðrétta það ójafnvægi sem ríkir á markaðnum. Við vitum að bílarnir standa oft tómir á virkum dögum en anna svo engan veginn eftirspurninni á álagstímum. Núverandi kerfi er því í raun óhagstætt leigubílstjórunum sjálfum. Við þurfum að nútímavæða þennan markað.
Viðreisn hefur ítrekað lagt fram breytingar á lögum um leigubifreiðar sem aldrei hafa náð fram að ganga. Og hverjir eru það sem standa í vegi fyrir því? Jú lukkuriddarar frelsisins standa í vegi fyrir þessu einfalda frelsismáli.
Hagsmuna hverra eru þeir að gæta?
Ekki almennings.