Sorgarleyfi vegna andláts foreldris

Ár hvert verða um 100 börn á Íslandi fyrir því þunga áfalli að missa foreldri. Á árunum 2009–2018 misstu rúmlega 1000 börn á Íslandi foreldri skv. tölum Hagstofunnar en þá létust 649 foreldrar barna undir 18 ára aldri; 448 feður og 201 móðir. Um 40% foreldranna létust úr krabbameinum. Í ofanálag við lífsins stærstu sorg þessara barna þá glímir það foreldri sem eftir stendur við erfiðar aðstæður, tekjumissi og jafnvel fjárhagsáhyggjur.

Ég hef lagt fram frumvarp um sorgarleyfi vegna makamissis fyrir fjölskyldur þar sem börn undir 18 ára aldri hafa misst foreldri. Þar er lagt til að foreldrar barna yngri en 18 ára sem missa maka sinn fái heimild til að taka allt að 6 mánaða leyfi frá vinnu og greiðslur frá Vinnumálastofnun á meðan. Hægt verði að taka leyfið á 2 ára tímabili frá andláti makans.

Fjölskylduaðstæður eru auðvitað ólíkar og hugtakið foreldri er þess vegna skilgreint víðara en almennt er gert í lögum. Aðrir en foreldrar eða forsjáraðilar geta þannig talist foreldrar í skilningi laganna hafi þau gegnt foreldraskyldum gagnvart barni 12 mánuði eða lengur. Þá eru líka lagðar til útfærslur vegna mismunandi aðstæðna fólks á vinnumarkaði og um styrk í tilviki námsmanna.

Miklu skiptir að þessu fjölskyldum sé veitt svigrúm til sorgarúrvinnslu og til að vera til staðar fyrir þau börn sem ganga í gegnum sára sorg og missi. Foreldrar í þessari stöðu eru nú háðir því að vinnuveitandi hafi svigrúm til að veita frí eða sveigjanleika í starfi. Hugsunin að baki er ekki síst hagsmunir barnanna sem í hluti eiga.

Sorgarmiðstöðin og Krabbameinsfélagið hafa bent á mikilvægi þess að festa sorgarleyfi í lög. Alþingi getur veitt þessum fjölskyldum mikilvægan stuðning með því að sameinast um þetta frumvarp. Í því felast skilaboð um að við ætlum sem samfélag að vera til staðar fyrir þau börn sem missa foreldri.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 24. nóvember 2022