Jálisti – góð breyting á lögum um at­vinnu­réttindi út­lendinga

Pawel Bartoszek

Til að Ísland tapi ekki í samkeppni þurfa nýsköpunar- og tæknifyrirtækin okkar að geta ráðið til sín fólk. Lög um atvinnuréttindi útlendinga eru of stíf og hindra okkur í þessari samkeppni. Í rúm fimm ár hefur því ítrekað verið lofað að til standi að auðvelda ráðningar erlendra sérfræðinga en lítið gerst hingað til.

Nú er hins vegar loksins komið fram frumvarp um þetta í samráðsgátt stjórnvalda sem er vel. Í grunninn snýr frumvarpið að því að búa til svokallaðan jákvæðan starfalista, eða „jálista“, að danskri fyrirmynd. Hugmyndin er sú að ef að það er vitað að það vanti kokka eða forritara þá á ekki að þurfa ekki að fara í gegnum hverja einustu atvinnuleyfisumsókn með þessum störfum og staðfesta í hvert skipti að ekki hafi fundist neinn á EES-svæðinu til að vinna þau. Við vitum að þörfin er til staðar.

Til að hrósa þegar hrós er verðskuldað yrði það til talsverðra bóta ef tilögurnar um jálistann sem hafa verið birtar næðu fram að ganga enda hefur undirritaður lengi talað fyrir jálista. Þetta er yfirveguð nálgun sem minnkar skriffinnsku, bætir samkeppnishæfni en passar um upp á réttindi þeirra sem fyrir eru á hinum íslenska vinnumarkaði.

Eflaust mætti stíga stærri skref og það hafa nokkur ríki gert. Atvinnuleyfi vegna sérfræðiþekkingar gildaþannig áfram í tvö á að hámarki en í nýlegum lögum í Frakklandi er sambærilegur tími fjögur ár. Þá vantar enn aðeins upp á lögin geri ráð fyrir að innflytjendur geti sjálfir verið fjárfestar og vinnuveitendur, en ekki aðeins launþegar. Þau mál þarf að vinna áfram.

Loks má spyrja sig hvort áfram sé nauðsynlegt að láta atvinnuleyfi fylgja vinnuveitanda, sérstaklega í störfum á jálista, en mögulega er það of stór breyting til að taka á þessari stundu. Önnur leið er þó sem gæti náð svipuðum réttarbótum. Í dag má framlengja dvalarleyfi sérfræðinga um þrjá mánuði þegar fólk missir vinnuna svo það geti fundið sér aðra. Annars missir það dvalarleyfið.

Það er ansi knappur tími fyrir atvinnuleit. Skynsamlegt væri að lengja þennan tíma í 6-12 mánuði. Það væri jákvætt ef unnt væri að ná fram slíkum breytingum fram í meðferð þingsins. Slíkar breytingar myndu tryggja en betur markmið frumvarpsins um samkeppnishæfni Íslands og um leið bæta öryggi þeirra erlendu sérfræðinga sem flytjast hingað búferlum með fjölskyldur sínar til að taka þátt í íslensku atvinnulífi.

Greinin birtist fyrst á Vísi 9. janúar 2023