08 feb „Án mikillar umræðu eða atbeina stjórnvalda“
23 athugasemdir eru gerðar, margar mjög alvarlegar, um brotalamir, aðgerðarleysi, slælegt eftirlit, lélega stjórnsýslu og hagsmunaárekstra sem undirstrika mjög bersýnilega skort á pólitískri sýn, aðgerðum og forystu um eina mikilvægustu atvinnugrein okkar Íslendinga, hið ört vaxandi fiskeldi.
Eitt af því sem Ríkisendurskoðun nefnir er að samþjöppun eignarhalds, stefnulaus uppbygging og nýting svæða sem vinna gegn því auðlindin skili hámarks ávinningi fyrir ríkissjóð hefur fest sig í sessi “án mikillar umræðu eða atbeina stjórnvalda”. Ótrúlegt alveg að í skýrslu sem nær til áranna 2014-2018 skuli þetta vera niðurstaðan, „án mikillar umræðu eða atbeina stjórnvalda“.
Þessi setning, frá annars orðvörum ríkisendurskoðanda, er sláandi. Hér hefur byggst upp heil atvinnugrein, sem stækkar ár frá ári, stjórnlaust. Stundum í óþökk náttúrunnar í gegndarlausu kapphlaupi um svæði, nánast án eftirlits eða eðlilegrar gjaldtöku og án þess að stjórnvöld hafi haft mikinn áhuga á umræðu eða hafi beitt sér fyrir því að lög og reglur skapi tilhlýðilegan ramma um atvinnugrein sem skilar tugum milljarða í þjóðarbúið.
Hér er látið reka á reiðanum. Framtíðarsýnin fyrir greinina er engin, enda kom þetta metnaðarleysi glögglega í ljós í svörum forsætisráðherra um skýrsluna á Alþingi eftir að skýrslan varð opinber. Í svörum verkstjóra ríkisstjórnarinnar til rúmra fimm ára var það gert að aðalatriði málsins að matvælaráðherra hefði óskað eftir umræddri skýrslu fyrir ári. Hvað með öll hin valdaárin frá 2018 þegar fiskeldið óx úr 12 þúsund tonnum í 45 þúsund tonn?
Núverandi félagsmálaráðherra VG var umhverfisráðherra á síðasta kjörtímabili og umhverfisráðuneytið fær sinn skerf af athugasemdum í skýrslunni og einnig undirstofnun. Að ógleymdri athugasemdinni um ráðuneytin sem ekki tala saman þrátt fyrir að deila forræði á greininni. Forsætisráðherra verkstýrði þá aðgerðaleysinu. Eina aðkoma flokksins að málinu er svo sannarlega ekki að biðja um skýrslu.
Er hægt að verja margra ára stefnu og aðgerðarleysi með því að óska eftir skýrslu til að flétta ofan af eigin vangetu og aðgerðarleysi. Er það eitthvað til hreykja sér af að hafa hringt á slökkviliðið á fimmta ári, eftir að hafa horft aðgerðarlaus á eldinn í fjögur ár og kastað tilfallandi sprekum á bálið?
Þessi mikilvæga atvinnugrein á betra skilið. Hún á skilið umgjörð sem gerir henni fært að blómstra í sátt við umhverfi sitt, náttúruna og fólkið í landinu. Stjórnsýsla og eftirlit þarf að vera í lagi og það þarf að finna leið til sanngjarnrar gjaldtöku og ekki verra ef slík gjaldtaka renni að talsverðu leiti til nærsamfélaga. Á þetta hefur ítrekað verið bent að hálfu míns flokks og löngu tímabært að stíga þau skref.
Greinin birtist fyrst á Vísir.is 7. febrúar