Fimmtán bjóða sig fram til embætta Viðreisnar

Frestur til að bjóða sig fram til formanns, í stjórn og í málefnaráð Viðreisnar rann út kl. 12.00 á hádegi í dag. Kosið verður á landsþingi Viðreisnar laugardaginn 11. febrúar. Frestur til framboðs til varaformanns og hugsanlega ritara, sem lagt er til að verði nýtt embætti, rennur út á þinginu sjálfu. Þá gæti framboðsfrestur til allra annarra embætta opnast að nýju á þinginu.

Hægt er að kynna sér frambjóðendur hér.

Eitt framboð barst til formanns, frá Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, núverandi formanni Viðreisnar.

Sex framboð bárust til stjórnar. Samkvæmt núverandi samþykktum eru fimm meðstjórnendur og tveir til vara. En fyrir fundi liggur breytingartillaga um að fækka meðstjórnendum um einn og kjósa sérstaklega ritara. Þau sem bjóða sig fram í stjórn Viðreisnar eru: Elín Anna Gísladóttir, Jón Steindór Valdimarsson, Kamma Thordarson, Natan Kolbeinsson, Oddný Arnarsdóttir og Thomas Möller.

Átta framboð bárust í málefnaráð. Fyrir landsþingi liggja tvær breytingartillögur vegna málefnaráðs. Samkvæmt annarri tillögunni skal kjósa sex fulltrúa í málefnaráð og tvo til vara. Samkvæmt hinni tillögunni skal kjósa fjóra formenn málefnanefnda sem skipa málefnaráð, auk þriggja einstaklinga kjörinna á landsþingi. Nefndirnar eru: 1.Mannréttinda-, velferðar- og menntanefnd; 2. Efnahags-, atvinnu- og viðskiptanefnd; 3.Umhverfis- og samgöngunefnd; 4. Utanríkis- og Evrópunefnd.

Þau sem bjóða sig fram í málefnaráð eru: Anna Kristín Jensdóttir, Eyþór Eðvaldsson, Friðrik Sigurðsson, Hildur Betty Kristjánsdóttir, Lilja G. Karlsdóttir, Máni Þór Magnason, Oddný Arnarsdóttir og Pawel Bartoszek.

Framboð til varaformanns rennur út einni klukkustund eftir að formaður hefur verið kjörinn. Daði Már Kristófersson, núverandi varaformaður Viðreisnar hefur þegar gefið það út að hann muni óska eftir endurkjöri. Gangi breytingartillögur eftir á þinginu verður framboðsfrestur til ritara klukkustund áður en kosning hefst. Einnig munu aðrir framboðsfrestir til embætta framlengjast og renna út klukkustund áður en kosning hefst.